Neymar til Al Hilal (Staðfest)
Brasilíumaðurinn Neymar hefur fært sig um set til Sádi-Arabíu og er hann búinn að skrifa undir samning við Al Hilal.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25177 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Brasilíumaðurinn Neymar hefur fært sig um set til Sádi-Arabíu og er hann búinn að skrifa undir samning við Al Hilal.
ÍBV hefur fengið frekari liðsstyrk fyrir komandi átök í Bestu deild kvenna því miðjumaðurinn Telusila Mataaho Vunipola er búin að semja við félagið.
Leicester hefur fengið ítalska miðjumanninn Cesare Casadei lánaðan frá Chelsea út tímabilið. Hann var lykilmaður hjá U20 landsliði Ítalíu sem komst í úrslit HM U20 landsliða í Argentínu í sumar. Þar hlaut hann gullboltann sem besti leikmaður mótsins og gullskóinn sem sá markahæsti. Þessi tvítugi leikmaður var seinni hluta síðasta tímabils hjá Reading. Leicester féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili og leikur í Championship-deildinni.
Valur hefur heldur betur styrkt sig í félagaskiptaglugganum sem er núna í gangi og núna á gluggadeginum hafa tveir leikmenn til viðbótar bæst við hópinn.
David Raya er genginn í raðir Arsenal á láni frá Brentford út tímabilið. Arsenal er sagt greiða Brentford 3 milljónir punda fyrir lánið og félagið getur keypt leikmanninn á 27 milljónir punda á meðan láninu stendur. Raya verður 28 ára í næsta mánuði. Hann er spænskur markvörður, fæddur í Barcelona en kom nokkuð ungur til Englands inn í unglingastarfið hjá Blackburn.
Keflavík hefur fengið liðsstyrk fyrir endasprettinn í Bestu deildinni. Til félagsins er kominn Muhamed Alghoul sem er króatískur Palestínumaður. Alghoul er 27 ára gamall og er fæddur í Króatíu en er einnig með palestínskan ríkisborgararétt.
Afturelding hefur fengið Rúrik Gunnarsson á láni frá KR út tímabilið. Rúrik er fæddur árið 2005 og er annar leikmaðurinn sem Afturelding fær fyrir lok gluggans því Ivo Braz kom til félagsins frá Ægi í gær.

Atalanta er búið að selja Jérémie Boga, knáan kantmann frá Fílabeinsströndinni, til OGC Nice í Frakklandi og danska vængbakvörðinn Joakim Mæhle til VfL Wolfsburg í Þýskalandi.

Fótboltaspurningar 2023, bókin sem allir knattspyrnuunnendur hafa beðið eftir, er komin út. Höfundur þessarar vinsælu bókaraðar er Guðjón Ingi Eiríksson og fer hann venju samkvæmt um víðan völl.

Rennes er búið að festa kaup á serbneska miðjumanninum Nemanja Matic sem kostar um þrjár milljónir evra og gerir tveggja ára samning.

Sheffield United er búið að kaupa Gustavo Hamer frá Coventry City fyrir óuppgefið kaupverð. Talið er að Sheffield borgi um 15 milljónir punda fyrir og þá mun Coventry halda hlutfalli af endursölurétti leikmannsins.

Denis Zakaria er genginn til liðs við AS Mónakó sem leikur í frönsku deildinni og endaði í sjötta sæti á síðustu leiktíð.

Chelsea er búið að kynna Moisés Caicedo til leiks sem nýjan leikmann félagsins.

Hér að neðan má sjá lista yfir 20 vinsælustu fréttir Fótbolta.net í síðustu viku, raðað eftir hversu oft þær eru lesnar. Á listanum má sjá mikið af fréttum tengdum enska boltanum en hann var að byrja um liðna helgi.
Sigríður Theódóra Guðmundsdóttir er komin aftur í Val eftir að hafa verið á láni á Selfossi fyrri hluta tímabilsins.
Besiktas hefur staðfest komu Alex Oxlade-Chamberlain til félagsins en hann kemur frá Liverpool á frjálsri sölu.
Fyrrum landsliðskonan Sigríður Lára Garðarsdóttir er búin að fá félagaskipti yfir í ÍBV. Hún fær leikheimild með liðinu á morgun og getur því spilað með ÍBV seinni hluta tímabilsins.
Afturelding hefur fengið til sín sóknarmanninn Ivo Braz frá botnliði Ægis. Ivo hefur skorað sjö mörk í sextán leikjum fyrir Ægi og var langmarkahæsti leikmaður liðsins áður en hann var fenginn í Mosfellsbænum. Ivo er Portúgali sem lék bæði á köntunum sem og fyrir aftan fremsta mann í leik Ægis gegn Þór á dögunum en þar skoraði Ivo eitt mark, úr vítaspyrnu.
Stjarnan hefur fengið til sín danska miðvörðinn Kristian Riis. Samningur hans við Lyngby rann út eftir síðasta tímabil. Riis er 26 ára og hefur leikið 23 leiki í dönsku úrvalsdeildinni. Hann kom upp úr frægu unglingastarfi Midtjylland. Hann lék fyrstu átta leiki Lyngby á síðasta tímabili en meiddist svo illa á hné og gat ekki spilað meira á tímabilinu. Freyr Alexandersson þjálfar Lyngby.
Everton hefur fengið til sín enska vængmanninn Jack Harrison á lánssamningi frá Leeds United út tímabilið. Aston Villa reyndi á síðustu stundu að fá Harrison en Everton náði að landa honum og hann gekkst undir læknisskoðun eldsnemma í morgun.