Fotbolti.net
14.08.23 - 20:06
Ívan Guðjón Baldursson

Gustavo Hamer kominn til Sheffield (Staðfest)

Gustavo Hamer kominn til Sheffield (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Sheffield United er búið að kaupa Gustavo Hamer frá Coventry City fyrir óuppgefið kaupverð. Talið er að Sheffield borgi um 15 milljónir punda fyrir og þá mun Coventry halda hlutfalli af endursölurétti leikmannsins.

Hamer er 26 ára miðjumaður frá Hollandi sem hefur verið í lykilhlutverki í liði Coventry að undanförnu.

Hann kom að 21 marki í 45 leikjum með Coventry á síðustu leiktíð og vakti mikla athygli á sér, enda er hann varnarsinnaður miðjumaður að upplagi.

Sheffield seldi Sander Berge til Burnley á dögunum auk þess að missa Iliman Ndiaye til Marseille en er búið að fylla í skarðið með Hamer og Vinícius Souza sem var kynntur í síðustu viku.

Sheffield er einnig búið að fá Anis Slimane, Bénie Traore og Aaron Trusty til sín í sumar, auk Yasser Larouci á láni. 

Gustavo Hamer kominn til Sheffield (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.