Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25199 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR03.03.2023, 20:14

Bergdís Fanney í Fylki (Staðfest)

Bergdís Fanney Einarsdóttir er gengin í raðir Fylkis frá KR en hún skrifaði undir samning til 2024. Knattspyrnudeild Fylkis tilkynnti þetta í dag.

FRÉTTIR03.03.2023, 18:39

Caicedo hjá Brighton til 2027 (Staðfest)

Moises Caicedo, miðjumaður Brighton á Englandi, framlengdi í dag samning sinn við félagið til 2027. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Brighton.

FRÉTTIR03.03.2023, 14:46

HK fær sýrlenskan miðvörð á láni (Staðfest)

Nýliðar HK í Bestu deildinni hafa fengið sýrlenskan miðvörð í sínar raðir því Ahmad Faqa er kominn með leikheimild með liðinu. Hann kemur á láni frá sænska félaginu AIK. Hann er uppalinn hjá AIK og var á láni hjá Västerås fyrri hluta síðasta tímabils og Sandvikens seinni hlutann.

FRÉTTIR03.03.2023, 12:51

Sandra leggur hanskana á hilluna (Staðfest)

Landsliðsmarkvörðurinn Sandra Sigurðardóttir tilkynnti með færslu á Instagram að hún væri búinn að leggja skóna og hanskana á hilluna. Sandra segir ákvörðunina eina sá erfiðustu sem hún hafi tekið en að sama skapi væri ákvörðunin góð. Sandra er 36 ára gömul og hefur verið aðalmarkvörður landsliðsins undanfarin fjögur ár. Alls á hún að baki 49 landsleiki, hefur farið með landsliðinu á fjögur stórmót en það var ekki fyrr en síðasta sumar sem hún spilaði sinn fyrsta leik á stórmóti. Hún stóð sig vel á EM og var á síðasta ári í 6. sæti í kosningu um íþróttamann ársins.

FRÉTTIR03.03.2023, 08:20

Karen Dögg spilar með Westchester á Ítalíu (Staðfest)

<p>Fram hefur komist að samkomulagi við Westchester United, unglingaakademíu í New York fylki í Bandaríkjunum, um að Karen Dögg Hallgrímsdóttir keppi með liðinu á Viareggio Cup sem fer fram á Ítalíu.</p>

FRÉTTIR02.03.2023, 17:17

Brynjar Ingi til Ham-Kam (Staðfest)

Norska félagið Ham-Kam, eða Hamarkameratene, hefur staðfest kaup sín á miðverðinum Brynjari Inga Bjarnasyni. Brynjar kemur til félagsins frá Vålerenga en bæði félög eru í efstu deild í Noregi. Brynjar gekk í raðir Vålerenga fyrir síðasta tímabil en skrifar nú undir þriggja ára samning við Ham-Kam. Tímabilið í fyrra fór ekki nægilega vel hjá Brynjari en nú er hann kominn í nýtt lið og annað umhverfi.

FRÉTTIR02.03.2023, 13:51

Margrét Lea og Birgitta Hallgríms í Gróttu (Staðfest)

Grótta tilkynnti í dag að Margrét Lea Gísladóttir hefði skrifað undir samning við félagið. Hún er fædd árið 2005, er uppalin hjá Breiðabliki og kemur á láni til Gróttu út tímabilið 2023. Hún lék tímabilin 2020 og 2021 með Augnabliki en varð fyrir því óláni að slíta krossbandi fyrir rúmu ári síðan og spilaði því ekki á síðasta tímabili. Hún á að baki sex leiki með U16 og U17 landsliðum Íslands.

FRÉTTIR02.03.2023, 13:15

Ellefu ungir í Kára og tveir eldri snúa heim (Staðfest)

Kári hefur verið að þétta raðirnar fyrir komandi átök í 3. deildinni í sumar. Ellefu leikmenn sem fæddir eru á árunum 2001-2006 hafa fengið félagaskipti til Kára og þá hafa tveir eldri leikmenn snúið aftur heim á Akranes. Það eru þeir Sverrir Mar Smárason, þáttarstjórnandi Ástríðunnar, og Marinó Hilmar Ásgeirsson. Sverrir kemur eftir tvö ár hjá ÍH og Marinó kemur eftir eitt tímabil með Kórdrengjum. <i>„Sverrir sem er á 28 aldursári hefur spilað samtals 105 deildarleiki á vegum KSÍ og það allt frá 1. deild til 4. deildar, en af þessum 105 deildarleikjum hefur hann spilað 80 leiki fyrir Kára. Sverrir hefur mikla og góða reynslu og mun passa vel inn í góða blöndu Kára af ungum efnilegum leikmönnum og eldri og reyndari leikmönnum,"</I> segir í tilkynningu Kára um komu Sverris.

FRÉTTIR02.03.2023, 12:26

Marokkóskur sóknarmaður í Víking Ólafsvík (Staðfest)

Víkingur Ólafsvík hefur fengið til sín marokkóskan sóknarmann, Abdelhadi Khalok sem er 26 ára. Í tilkynningu frá Ólafsvíkurfélaginu segir að Khalok sé fæddur og uppalinn á Spáni og þyki hraður og teknískur.

FRÉTTIR02.03.2023, 10:33

Viktor Helgi til Færeyja (Staðfest)

Miðjumaðurinn Viktor Helgi Benediktsson er búinn að skrifa undir samning við AB Argir í Færeyjum. Hann mun leika í Færeyjum á tímabilinu sem er að hefjast núna um helgina. Fyrsti leikur hjá AB Argir er gegn EB/Streymur á útivelli á sunnudaginn.

FRÉTTIR01.03.2023, 10:35

KR náði sambandi við Ítalíu og fær Jakob Franz lánaðan (Staðfest)

Varnarmaðurinn Jakob Franz Pálsson hefur fengið leikheimild með KR og mun leika með liðinu í sumar á láni frá ítalska liðinu Venezia. Jakob er tvítugur og hefur verið á mála hjá Venezia í tvö ár. Hann var fyrst fenginn frá Þór á láni en félagið nýtti í kjölfarið forkaupsrétt á kappanum og keypti hann frá uppeldisfélaginu.

FRÉTTIR01.03.2023, 10:18

Frá KA til Kasakstan og Slóveníu (Staðfest)

Fram kom hér á Fótbolti.net fyrir áramót að Bryan Van Den Bogaert og Gaber Dobrovoljc yrðu ekki áfram hjá KA eftir að hafa leikið með liðinu tímabilið 2022.

FRÉTTIR01.03.2023, 09:18

Þorsteinn Örn í Njarðvík (Staðfest)

Þorsteinn Örn Bernharðsson er kominn til Njarðvík, nýliða Lengjudeildarinnar, en hann kemur frá KV. Hann er vinstri bakvörður en getur einnig leikið á kantinum. Hann er 23 ára lék 21 leik fyrir KV í Lengjudeildinni í fyrra en liðið féll.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.