Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25205 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR20.01.2023, 13:14

Memphis keyptur til Atletico Madrid (Staðfest)

Atletico Madrid hefur fengið öflugan liðsstyrk fyrir baráttuna seinni hluta tímabilsins á Spáni. Memphis Depay hefur skrifað undir tveggja og hálfs árs samning við Atletico. Kaupverðið er talið vera um þrjár milljónir evra. Hann er keyptur frá Barcelona og verður kynntur fyrir stuðningsmönnum á Metropolitano leikvanginum klukkan 18:00 í kvöld.

FRÉTTIR20.01.2023, 11:41

Rasmus í Aftureldingu (Staðfest) - „Liðið spilar mjög skemmtilegan bolta“

Danski varnarmaðurinn Rasmus Christiansen hefur gengið til liðs við Aftureldingu í Lengjudeildinni. Hinn 33 ára gamli Rasmus kemur frá Val þar sem hann hefur leikið undanfarin sjö ár. Á þeim tíma vann Ramus þjáÍslandsmeistaratitla og einn bikarmeistaratitil. Rasmus hefur á ferli sínum á Íslandi einnig leikið með ÍBV, KR og Fjölni en hann á að baki 172 leiki í efstu deild sem og fjölda leikja í öðrum keppnum. Afturelding hefur staðfest komu hans og ljóst að Rasmus er hrifinn af mörgu af því sem kemur úr Mosfellsbænum. <i>„Mér líst mjög vel á allt sem er að gerast í Mosfellsbæ og langar að taka þátt í því. Ég þekki Aron Elí Sævarsson og hef heyrt frá honum hvernig þetta hefur verið. Afturelding spilar mjög skemmtilegan bolta og það verður gaman að taka þátt í því,"</i> sagði Rasmus við samfélagsmiðla Aftureldingar. Afturelding hafnaði í áttunda sæti Lengjudeildarinnar í fyrra.

FRÉTTIR20.01.2023, 10:08

Adam Ægir valdi Val (Staðfest) og fékk sér rauðvín

Sóknarleikmaðurinn Adam Ægir Pálsson hefur staðfest að hann sé orðinn leikmaður Vals, með skemmtilegu myndbandi á Twitter. Valur kaupir Adam frá Víkingi og skrifaði hann undir þriggja ára samning við Hlíðarendafélagið. Í myndbandinu sést hann með þrjár derhúfur fyrir framan sig; eina merkta Val, aðra Víkingi og sú þriðja FH sem reyndi einnig að fá hann í sínar raðir. Adam tekur fyrst upp Víkingsderhúfuna áður en hann setur Valsderhúfuna á sig og fær sér rauðvín.

FRÉTTIR19.01.2023, 17:30

Karius verður hjá Newcastle til sumars (Staðfest)

Newcastle hefur staðfest að markvörðurinn Loris Karius verði áfram í herbúðum félagsins út tímabilið. Þýski markvörðurinn skrifaði upphaflega undir skammtímasamning með ákvæði um mögulega framlengingu til júní 2023. Loris er 29 ára og hefur áður spilað fyrir Mainz, Liverpool, Besiktas og Union Berlin. Hann hefur enn ekki leikið neinn opinberan leik fyrir Newcastle, aðeins æfingaleik.

FRÉTTIR19.01.2023, 15:26

Elías Már til NAC Breda (Staðfest)

Hollenska félagið NAC Breda fékk í dag Elías Má Ómarsson frá franska félaginu Nimes. Elías skrifar undir eins og hálfs árs samning í Hollandi með möguleika á eins árs framlengingu ef Breda kemst upp í úrvalsdeild. Elías kemur til Hollands á frjálsri sölu frá Nimes.

FRÉTTIR19.01.2023, 15:01

Yann Sommer til Bayern (Staðfest)

Markvörðurinn Yann Sommer er genginn í raðir Bayern Munchen og hefur skrifað undir samning fram á sumarið 2025. Bayern hefur verið í markvarðarleit eftir að Manuel Neuer slasaði sig á skíðum og ljóst að hann verður ekki meira með á tímabilinu.

FRÉTTIR19.01.2023, 14:30

Oliver Kelaart í Njarðvík (Staðfest)

Oliver Kelaart er genginn í raðir Njarðvíkur og verður með liðinu í Lengjudeildinni í sumar. Hann er ástralskur/spænskur sóknarsinnaður leikmaður sem hefur æft með Njarðvíkurliðinu í vetur, og hefur nú samið um að leika með því í sumar.

FRÉTTIR19.01.2023, 06:00

Rakel Mist í Fylki (Staðfest)

<p>Rakel Mist Hólmarsdóttir hefur skrifað undir tveggja ára samning við Fylki og mun leika með liðinu í Lengjudeildinni í sumar.</p>

FRÉTTIR19.01.2023, 06:00

Ólína spilar með Fram í sumar (Staðfest)

<p>Ólína Sif Hilmarsdóttir hefur skrifað undir tveggja ára samning við uppeldisfélagið sitt, Fram og mun leika með liðinu í Lengjudeildinni í sumar.</p>

FRÉTTIR17.01.2023, 17:00

Guilbert frá Villa til Strasbourg (Staðfest)

Franski varnarmaðurinn Frederic Guilbert hefur gengið í raðir Strasbourg frá Aston Villa en kaupverð er ekki gefið upp. Bakvörðurinn kom til Villa í janúar 2019 frá Caen og lék 31 leik fyrir félagið, sá síðasti var deildabikarleikur gegn Barrow í ágúst 2021.

FRÉTTIR17.01.2023, 14:06

Guy Smit í ÍBV (Staðfest) - Má spila gegn Val

Markvörðurinn Guy Smit er genginn í raðir ÍBV á láni frá Val út komandi tímabil í Bestu deildinni. Guy er 26 ára Hollendingur sem lék með Val á síðasta tímabili eftir að hafa varið mark Leikni tvö tímabil þar á undan. Í frétt á heimasíðu ÍBV er tekið fram að Guy sé með leikheimild í leikjum gegn Val.

FRÉTTIR17.01.2023, 13:00

Einn besti markvörður Bestu deildarinnar til Piteå (Staðfest)

Markvörðurinn Samantha Leshnak Murphy sem lék með Keflavík á síðasta tímabili er gengin í raðir sænska félagsins Piteå. Samantha átti frábært tímabil með Keflavík í fyrra, var þrívegis valin í lið umferðarinnar í Bestu deildinni og varði mark úrvalsliðs fyrri hluta tímabilsins.

FRÉTTIR17.01.2023, 11:40

Ásgeir Marinó í Þrótt Vogum (Staðfest)

Þróttarar frá Vogum hafa krækt í nýjan leikmann því í dag var Ásgeir Marinó Baldvinsson kynntur sem nýr leikmaður félagsins. Miðjumaðurinn Ásgeir kemur frá Þór Akureyri og á samtals að baki 44 leiki fyrir Þórsara í Lengjudeildinni og bikarnum.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.