Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25206 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR19.12.2022, 11:55

Beitir leggur markmannshanskana á hilluna (Staðfest)

Markvörður KR, Beitir Ólafsson, er hættur í boltanum. Beitir hefur spilað fyrir félagið síðan 2017 en hann varð Íslandsmeistari með liðinu 2019. Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, sagði í vetur að Beitir væri tilbúinn að taka eitt tímabil í viðbót en hann hefur hinsvegar ákveðið að leggja markmannshanskana á hilluna. Spurning er hvað KR gerir í markmannsmálum sínum en Aron Snær Friðriksson, fyrrum markvörður Fylkis, var varamarkvörður á liðnu tímabili og spilaði nokkra leiki. KR endaði í fjórða sæti Bestu deildarinnar.

FRÉTTIR18.12.2022, 18:17

Twitter - Sagan hefur verið skrifuð og henni er lokið

Argentína vann þriðja heimsmeistaratitil sinn eftir einn besta úrslitaleik allra tíma á HM. Lionel Messi vann þann stóra eftir nokkrar misheppnaðar tilraunir. Er hann besti leikmaður allra tíma? Flestir eru sammála um það á Twitter. Hér að neðan má sjá brot af HM fótboltaumræðunni á samskiptamiðlinum Twitter. Með því að fylgja Fótbolta.net á Twitter færðu fréttaveitu þar sem inn rúlla nýjustu fréttirnar úr boltanum. Notið kassamerkið #fotboltinet fyrir boltaumræðuna á Twitter. Heimasvæði Fótbolta.net á Twitter er á @Fotboltinet.

FRÉTTIR18.12.2022, 14:00

Kristján Gunnars í Hauka (Staðfest)

Kristján Gunnarsson er búinn að skrifa undir tveggja ára samning við Hauka eftir að hafa staðið sig vel í 3. deildinni síðustu tvö tímabil.

FRÉTTIR18.12.2022, 12:06

Southgate verður áfram með England (Staðfest)

Enska fótboltasambandið hefur staðfest að Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englendinga, verði áfram með stjórnartaumana. Southgate íhugaði að segja upp starfinu sínu eftir tap gegn Frakklandi í 8-liða úrslitum heimsmeistaramótsins.

FRÉTTIR17.12.2022, 18:00

Viktoría Diljá í Fylki (Staðfest)

Knattspyrnudeild Fylkis hefur staðfest að Viktoría Diljá Halldórsdóttir sé búin að skrifa undir tveggja ára samning við félagið.

FRÉTTIR17.12.2022, 10:41

Dagur Austmann í Grindavík (Staðfest)

Dagur Austmann skrifaði í dag undir tveggja ára samning við Lengjudeildarlið Grindavíkur en hann kemur til félagsins frá Leikni. Knattspyrnudeild Grindavík segir frá þessu í tilkynningu á heimasvæði sínu á samfélagsmiðlum.

FRÉTTIR16.12.2022, 22:33

Brynjar Snær í HK (Staðfest)

Brynjar Snær Pálsson er genginn í raðir HK frá ÍA en hann skrifaði undir þriggja ára samning við Bestu-deildarfélagið í kvöld. Þetta kemur fram í tilkynningu frá HK-ingum.

FRÉTTIR16.12.2022, 20:25

Salomon Rondon yfirgefur Everton (Staðfest)

Venesúelamaðurinn Salomon Rondon hefur rift samningi sínum við enska úrvalsdeildarfélagið Everton en enska félagið sagði frá þessu í tilkynningu í kvöld.

FRÉTTIR16.12.2022, 16:37

Joey Gibbs í Stjörnuna (Staðfest)

Ástralski sóknarmaðurinn Joey Gibbs hefur fengið félagaskipti úr Keflavík og yfir í Stjörnuna. Gibbs hefur verið hjá Keflavík frá 2020 og átti hann stóran þátt í því að liðið komst upp í Bestu deildina það sumarið. Hann skoraði þá 21 mark í 19 leikjum í Lengjudeildinni.

FRÉTTIR16.12.2022, 12:45

Emil Berger yfirgefur Leikni (Staðfest)

Miðjumaðurinn Emil Berger hefur yfirgefið herbúðir Leiknis í Breiðholti og mun ekki spila með liðinu á næstu leiktíð. Þetta segir í tilkynningu félagsins í dag.

FRÉTTIR16.12.2022, 12:30

Lesendur velja Messi þann besta í sögunni (Staðfest)

Lionel Messi er besti fótboltamaður sögunnar að mati lesenda Fótbolta.net. Yfir 2.600 manns tóku þátt í könnun þar sem Messi hlaut tæplega 54% atkvæða. Messi verður í eldlínunni á sunnudag þegar hann spilar sinn síðasta HM leik, úrslitaleik gegn Argentínu.

FRÉTTIR16.12.2022, 12:14

Arnleifur í ÍA (Staðfest)

Arnleifur Hjörleifsson er genginn í raðir ÍA frá Kórdrengjum og skrifar undir tvegja ára samning. Frá þessu greinir ÍA á samfélagsmiðlum sínum. Hann er uppalinn í Ólafsvík en spilaði með ÍA í 2. og 3. flokki, var hluti af sigursælu liði ÍA í 2. flokki sem varð Íslandsmeistari árin 2018 og 2019.

FRÉTTIR16.12.2022, 06:00

Anton Freyr í Þrótt Vogum (Staðfest)

Anton Freyr Hauks Guðlaugsson er genginn til liðs við Þrótt Vogum og tekur slaginn með félaginu í 2. deild næsta sumar.

FRÉTTIR15.12.2022, 16:37

Portúgal búið að reka Santos (Staðfest) - Mourinho efstur á blaði

Portúgalska fótboltasambandið hefur rekið Fernando Santos en hann hefur verið landsliðsþjálfari í átta ár. Hápunkturinn kom klárlega 2016 þegar hann stýrði portúgalska liðinu til Evrópumeistaratitilsins. Árið 2019 vann liðið svo Þjóðadeildina. Santos er 68 ára og var með samning til 2024 en honum hefur nú verið rift eftir að Portúgal féll úr leik gegn Marokkó í 8-liða úrslitum HM í Katar.

FRÉTTIR15.12.2022, 15:00

Dúna ráðin til Íslendingafélagsins Kristianstad (Staðfest)

Guðrún Þórbjörg Sturlaugsdóttir, betur þekkt sem Dúna, hefur verið ráðin til starfa hjá sænska úrvalsdeildarfélaginu Kristianstad. Tekur hún við starfi þrekþjálfara hjá liðinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í dag.

FRÉTTIR15.12.2022, 14:36

Endrick fer til Real Madrid 2024 (Staðfest)

Brasilíska félagið Palmeiras hefur tilkynnt sölu á Endrick til Real Madrid. Kaupin ganga í gegn í júlí 2024, þegar leikmaðurinn verður 18 ára gamall. Leila Pereira, forseti Palmeiras, segir að um stærstu viðræður í sögu brasilíska fótboltans hafi verið að ræða. Á heimasíðu félagsins er haft eftir Endrick að Palmeiras verði alltaf í hjarta sínu. Hann er yngsti leikmaður sem spilað hefur fyrir aðallið félagsins.

FRÉTTIR14.12.2022, 12:00

Siggi Bond í KFK (Staðfest)

KFK hefur fengið mikinn liðsstyrk fyrir komandi átök í 4. deildinni því Sigurður Gísli Bond Snorrason er genginn í raðir félagsins. Siggi kemur frá Aftureldingu þar sem hann lék sautján leiki í Lengjudeildinni í fyrra og skoraði tvö mörk. Þá skoraði hann fjögur mörk í fjórum leikjum í Mjólkurbikarnum. Þar áður lék hann með Þrótti Vogum og hjálpaði liðinu að komast upp í Lengjudeildina sumarið 2021.

FRÉTTIR14.12.2022, 09:27

Lilja Lív og Rakel Lóa heim í Gróttu (Staðfest)

Þær Lilja Lív Margrétardóttir og Rakel Lóa Brynjarsdóttir hafa skrifað undir samning hjá knattspyrnudeild Gróttu. Lilja og Rakel eru báðar uppaldar hjá félaginu en hafa undanfarin misseri söðlað um í Bestu deild kvenna og Lengjudeildinni. Þetta kom fram í færslu Gróttu á samfélagsmiðlum í gær.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.