Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 01. júlí 2022 18:26
Anton Freyr Jónsson
Meistaravellir
Byrjunarlið KR og Víkings R: Ingvar Jónsson á bekknum hjá Víkingum
ingvar Jónsson, markvörður Víkinga.
ingvar Jónsson, markvörður Víkinga.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Klukkan 19:15 hefst Reykjavíkurslagur KR og Víkings frá Reykjavík. Það má búast við miklu fjöri hér í kvöld en þegar þessi lið hafa mæst eru oft mikil læti. Þjálfarar liðana hafa opinberað byrjunarlið sín. Víkingar frá Reykjavík eru á miklu skriði þessa stundina en liðið hefur unnið sjö leiki í röð.

KR situr í sjötta sæti deildarinnar en liðið er með 16.stig. Víkingar sitja fyrir leik kvöldsins í þriðja sæti deildarinnar með 19.stig. 

Lestu um leikinn: KR 0 -  3 Víkingur R.

Rúnar Kristinsson gerir þrjár breytingar á liði sínu frá bikarslagnum gegn Njarðvík. Kjartan Henry Finnbogason, Theodór Elmar Bjarnason og Pontus Lindgren koma inn í liðið. Stefán Alexander Ljubicic og Sigurður Bjartur Hallsson fá sér sæti á bekknum. Finnur Tómas Pálmason er utan hóps hjá KR í kvöld.

Arnar Bergmann Gunnlaugsson gerir fimm breytingar frá sigrinum gegn Selfossi í Mjólkurbikarnum. Oliver Ekroth, Erlingur Agnarsson, Halldór Smári Sigurðsson, Nikolaj Hansen og Davíð Örn Atlason koma allir inn í liðið hjá Víkingum í kvöld. Ingvar Jónsson snýr aftur á bekkinn hjá Víkingum en hann hefur verið að glíma við meiðsli.


Byrjunarlið KR:
1. Beitir Ólafsson (m)
0. Pálmi Rafn Pálmason
4. Hallur Hansson
5. Arnór Sveinn Aðalsteinsson
9. Kjartan Henry Finnbogason
11. Kennie Chopart (f)
14. Ægir Jarl Jónasson
15. Pontus Lindgren
16. Theodór Elmar Bjarnason (f)
18. Aron Kristófer Lárusson
23. Atli Sigurjónsson

Byrjunarlið Víkingur R.:
0. Þórður Ingason
4. Oliver Ekroth
5. Kyle McLagan
7. Erlingur Agnarsson
8. Viktor Örlygur Andrason
10. Pablo Punyed (f)
12. Halldór Smári Sigurðsson
20. Júlíus Magnússon (f)
23. Nikolaj Hansen
24. Davíð Örn Atlason
80. Kristall Máni Ingason
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner