Bjarni Jóh 2: Fór til Noregs og lærði hjá Drillo

Bjarni ásamt sínu fyrsta liði, kvennaliði Ísfirðinga, sem vann sig upp í efstu deild. Aftari röð frá vinstri: Hjördís Hjartardóttir, Sigrún Lyngmó, Sigríður Lára Gunnlaugsdóttir, Svanhildur Ósk Garðarsdóttir, María Níelsdóttir, Lára Konráðsdóttir, Jenný Jensdóttir, Bjarni Jóhannsson. Fremri röð frá vinstri: Ingibjörg Systa Jónsdóttir, Freygerður Ólafsdóttir, Stella Hjaltadóttir, Halldóra Gylfadóttir, Vala Úlfljótsdóttir, Sigrún Sigurðardóttir, Sigríður Inga Guðmundsdóttir, Unnur Árnadóttir.

Mynd: Saga fótboltans á Ísafirði

Bjarni lék með meistaraflokki Þróttar í sjö ár, frá 1975 til 1981, fimm þau síðari í 2. deild, næstefstu deildinni á þeim tíma, eins og fjallað var um í fyrsta hluta viðtalsins síðasta mánudag, en það eru gullaldarárin í sögu Þróttar sem blandaði sér um tíma í baráttu um sæti í efstu deild.
Hjá Þrótti var hann ávallt í stóru hlutverki en síðan leitaði hugurinn annað og það freistaði Norðfirðingsins að spreyta sig meðal þeirra bestu í efstu deild.
Í þessum öðrum hluta viðtalsins segir Bjarni frá árunum 1982 til 1986 á Ísafirði, Akureyri, Neskaupstað og Noregi.
Tímamót að fara til Ísafjarðar
Bjarni segir að þarna hafi verið komið að tímamótum hjá sér.
„Ég lauk stúdentsprófi við Menntaskólann í Hamrahlíð árið 1980 og fór í kjölfarið á því í Íþróttakennaraskólann á Laugarvatni. Árið 1982 fór ég síðan vestur á Ísafjörð til að spila með ÍBÍ sem var þá nýliði í efstu deild, undir stjórn Eskfirðingsins Magnúsar Jónatanssonar sem hafði áður þjálfað mig heima í Neskaupstað. En ég náði ekkert að spila þetta ár, sleit liðbönd í fæti og átti ekki afturkvæmt inn á völlinn.