Fotbolti.net
01.10.22 - 14:00
Ívan Guðjón Baldursson

Einkunnir Arsenal og Tottenham: Xhaka bestur - Emerson fjarkaður

Einkunnir Arsenal og Tottenham: Xhaka bestur - Emerson fjarkaður
Canon

Mynd: Getty Images

Sky Sports er búið að gefa leikmönnum einkunnir eftir 3-1 sigur Arsenal gegn Tottenham í fyrsta leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni.

Granit Xhaka var valinn sem besti leikmaður vallarins enda stóð hann sig vel á miðjunni og skoraði í sigrinum. Xhaka fær 8 í einkunn eins og helmingurinn af Arsenal liðinu.

William Saliba, Thomas Partey, Bukayo Saka, Gabriel Martinelli og Gabriel Jesus fá allir 8.

Emerson Royal var verstur á vellinum enda fékk hann að líta beint rautt spjald fyrir að traðka á Martinelli á 62. mínútu leiksins. Emerson fær 4 í einkunn og var lélegastur eftir Cristian Romero og Eric Dier sem fá 5 fyrir sinn þátt.

Arsenal er á toppi deildarinnar með fjögurra stiga forystu á Tottenham eftir þennan sigur.

Arsenal: Ramsdale (7), White (7), Saliba (8), Gabriel (6), Zinchenko (7), Partey (8), Xhaka (8), Saka (8), Odegaard (7), Martinelli (8), Jesus (8).
Varamenn: Tierney (6), Lokonga (6)

Tottenham: Lloris (6), Romero (5), Dier (5), Lenglet (6), Emerson (4), Hojbjerg (6), Bentancur (6), Perisic (6), Richarlison (6), Kane (7), Son (6).
Varamenn: Sanchez (6), Bissouma (6), Sessegnon (6), Doherty (6), Skipp (6).

Einkunnir Arsenal og Tottenham: Xhaka bestur - Emerson fjarkaður
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.