Fotbolti.net
02.07.20 - 22:23
Birna Rún Erlendsdóttir

Sesselja Líf: Okkur langar rosalega að komast upp í efstu deild

Auglýsing
Sesselja Líf Valgeirsdóttir, fyrirliði Aftureldingar

Sesselja Líf Valgeirsdóttir, fyrirliði Aftureldingar

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
„Vonsvikni, það er eiginlega bara eins og við höfum tapað þessum leik“ segir Sesselja Líf Valgeirsdóttir, fyrirliði Aftureldingar eftir 0-0 jafntefli við Gróttu í Lengjudeidinni í kvöld. 
„Klárað færin okkar, klárlega, þetta var bara mjög léleg færanýting og við fengum víti og hefðum bara átt að skora úr því og beint eftir vítið. Það er margt sem að fór úrskeiðis í dag, þrátt fyrir að vera bara rosalega góðar.“



„Við vorum bara með yfirhöndina eiginlega allan leikinn og það er bara pirrandi að tapa þessum leik.“ 




Sesselja talar um að færanýting liðsins hefði mátt vera betri í leiknum.



„Við ætluðum að koma sterkari til baka og nýta færin okkar betur.“



„Við erum bara á góðri leið, við erum búnar að vera spila rosalega seinustu leik og ætlum að halda því áfram.“ 




Sesselja segir að aðal markmið þeirra er að komast upp í efstu deild en þær hugsa þó bara um einn leik í einu. 



Viðtalið í heild sinni má nálgast hér að ofan. 
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.