Fotbolti.net
02.07.26 - 21:18
Brynjar Ingi Erluson

Besta deildin: Víkingur með ellefu stiga forystu eftir dramatíska endurkomu

Gylfi Þór skoraði sigurmarkið seint í uppbótartíma

Gylfi Þór skoraði sigurmarkið seint í uppbótartíma

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur R. 3 - 2 KA
1-0 Aron Elís Þrándarson ('5 )
1-1 Hallgrímur Mar Steingrímsson ('14 )
1-2 Hallgrímur Mar Steingrímsson ('23 )
2-2 Aron Elís Þrándarson ('81 )
3-2 Gylfi Þór Sigurðsson ('94 , víti)
Lestu um leikinn
Íslandsmeistarar Víkings eru með ellefu stiga forystu á toppi Bestu deildar karla eftir að hafa unnið dramatískan sigur á KA í uppbótartíma í Víkinni í kvöld.

Fyrr í kvöld gerðu Þór og KR 3-3 jafntefli og fengu Víkingar möguleika á að auka forystuna í ellefu stig á toppnum.

Það byrjaði vel. Aron Elís Þrándarson skoraði á 5. mínútu. Helgi Guðjónsson lyft boltanum fyrir markið á Aron Elís sem var einn. Hann stangaði boltanum framhjá Steinþóri Má Auðunssyni og í netið.

KA fór aðeins að ógna og skoraði úr fyrstu tilraun sinni. Hallgrímur Mar Steingrímsson átti skot rétt fyrir utan teiginn sem fór af Tarik Ibrahimagic og yfir Aron Snæ Friðriksson í markinu.

Víkingar voru nálægt því að komast aftur í forystu stuttu síðar en Steinþór varði frá Elíasi Má Ómarssyni og var Valdimar Þór Ingimundarson ekki langt frá því að fylgja eftir.

Þeim var refsað rétt eftir það. Hallgrímur fékk boltann í vítateig Víkinga, fékk að dútla sér með boltann áður en hann setti hann í fjærhornið.

Víkingar voru að sækja margar hornspyrnu en ekki að ná að nýta þær nógu vel.

Staðan í hálfleik var 2-1 fyrir gestunum en í þeim síðari þurftu heimamenn að gera markmannsskiptingu. Aron Snær var sárþjáður eftir að Oliver Heiðarsson lenti á honum og inn kom Ögmundur Kristinsson sem kom til félagsins fyrr í sumar.

Víkingar héldu áfram að banka á dyrnar og að lokum opnuðust þær þegar Aron Elís gerði annað mark sitt í leiknum. Óskar Borgþórsson átti glæsilega sendingu inn á Aron sem átti laglegt skot í nærhornið.

Þessi leikur endaði síðan með mikilli dramatík. Í uppbótartíma braut Kári Gautason á Óskari í teignum og vítaspyrna dæmd. Það var ekki hægt að finna yfirvegaðri mann en Gylfa Þór Sigurðsson til að taka það víti.

Hann sendi Steinþór í vitlaust horn og tryggði Víkingum mikilvægan 3-2 sigur. Sigurinn kemur Víkingum í ellefu stiga forystu á toppnum en KA í 10. sæti með 10 stig.

Hallgrímur Mar skoraði tvö fyrir KA en það dugði ekki til

Hallgrímur Mar skoraði tvö fyrir KA en það dugði ekki til

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Snær, markvörður Víkinga, meiddist í seinni og kom Ögmundur Kristinsson inn fyrir hann

Aron Snær, markvörður Víkinga, meiddist í seinni og kom Ögmundur Kristinsson inn fyrir hann

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta karla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.22+4653
2Fram22+1445
3KR22+2544
4Breiðablik22+230
5ÍA22-230
6Keflavík22-528
7Stjarnan22-828
8Valur22-627
9FH22-1221
10Þór22-2821
11KA22-1320
12ÍBV22-1318
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.