Siggi Höskulds: Ógeðslega svekkjandi að líta til baka og líða þannig
Auglýsing

Sigurður Heiðar Höskuldsson

Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net

Úr leiknum í kvöld

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, var nokkuð sáttur við stigið sem liðið fékk í 3-3 jafnteflinu gegn KR í Bestu deildinni í kvöld og það þrátt fyrir að liðið hafi komist þremur mörkum yfir.
Lestu um leikinn: Þór 3 - 3 KR
Þórsarar komust í þriggja marka forystu á fyrstu fimmtán mínútunum gegn KR og mörkin voru hvert öðru sérstæðara.
Þrátt fyrir að missa niður vænlega stöðu og enda með jafntefli var Sigurður ánægður með sína menn. Hann lítur á stigið sem hálfgerðan sigur gegn jafn sterku liði og KR.
„Alvöru leikur, alvöru action, skemmtileg mörk og alvöru læti,“ sagði Sigurður við Fótbolta.net.
Aron Birkir Stefánsson, markvörður Þórs, skoraði þriðja markið nánast frá miðju og Sigurður hrósaði honum fyrir glæsiskotið.
„Já, mér fannst skrítið að við værum ekki búnir að sparka fyrr yfir hann. Þetta er glæsilegt hjá Aroni, geggjað mark og eiginlega bara í skeytunum.“
KR-ingar minnkuðu muninn áður en fyrri hálfleikurinn var úti og voru með vindinn í bakið í síðari hálfleik.
Hvernig leið þér?
„Eins og ég vissi að mér myndi líða. Þeir voru alltaf að fara vera með boltann og geggjaðir. Við vorum alltaf að fara 'grind-a' og gerðum það vel. Mér fannst það ganga ágætlega og fengum 'breik' í fyrri hálfleik og svekktir að við vorum ekki að klára fleiri upphlaup með skoti. Leikurinn er að fara í þetta út af hvernig þeir eru að spila, þú ert alltaf með opinn völl fyrir framan og geysist alltaf af stað og erfitt að ætla að róa og spila þegar þú sérð heilan völl fyrir framan þig.“
„Við hefðum átt að nýta stöðuna betur og seinni hálfleikurinn ógeðslega erfiður. KR-liðið er geggjað og við hefðum getað verið 10-0 yfir og þeir hefðu alltaf haft trú á því að koma til baka. Þeir eru búnir að búa til þannig hugarfar og þannig stemninguna í liðinu að þeir hafi svo mikla trú á að það er bara viðbjóður að spila við þetta.“
„Þeir eru svo hugaðir í hvernig þeir spila fótbolta og þora að senda sendingar sem aðrir þora ekki. Þurfa að snúa í stöðum sem aðrir þora ekki og það er það sem þjálfarateymið er búið að búa til hjá þeim, hugrekki og hugarfar sem er ógeðslega erfitt að spila við,“ sagði Sigurður.
Dómgæslan réði úrslitum
Sigurður var óánægður með dómgæsluna og segist sjaldan kvarta yfir henni. Honum fannst hins vegar stóru atvikin hafa fallið með KR.
„Mér líður eins og dómgæslan hafi tapað þessum leik fyrir okkur. Öll stóru augnablikin falla þeirra megin og það er ógeðslega svekkjandi að líta til baka og líða þannig. Ég tala aldrei um dómgæsluna en mér líður eins og dómgæslan hafi ráðið úrslitum hér í dag.“
„Þeir eiga að fá tvö rauð fyrir utan þetta rauða sem þeir fá. Við eigum að fá víti, en ég veit ekki með þetta víti sem við fáum á okkur. Öll stóru atvikin falla með þeim og auðvitað eru þeir meira með boltann og fá fleiri færi, en þeir eiga að fá tvö rauð fyrir utan þetta eina rauða og fyrr í leiknum. Þá hefðum við unnið þennan leik,“ sagði hann ennfremur.
Sigurður var stoltur af frammistöðu sinna manna og tekur margt jákvætt úr leiknum, þó honum hafi fundist Þórsarar geta gert betur þegar þeir unnu boltann.
„Ég geri það. Ég er stoltur af liðinu, hvernig við börðumst. Þetta er hnjaskaður hópur og ekki búnir að sækja mörg stig. Stig á heimavelli á móti KR er vel gert að mörgu leyti. Auðvitað horfir fólkið á að við erum 3-0 yfir, en það vita allir sem hafa spilað við KR og horft á þá spila að við hefðum getað verið 7-0 yfir og þeir hefðu alltaf komið á okkur. Það er erfitt að díla við þá, fannst við gera margt vel og leikplanið gekk að mörgu leyti upp. Margir eiga fína frammistöðu, en pínu svekktir hvað við vorum lélegir að senda fyrstu snertingu eftir að við unnum boltann. Það er helvíti mikilvæg sending á móti þessu liði og klára hröðu sóknirnar sem við áttum í fyrri hálfleik sérstaklega með skoti,“ sagði Sigurður ennfremur.
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 13 | +38 | 37 |
| 2 | KR | 14 | +14 | 29 |
| 3 | Fram | 12 | +7 | 26 |
| 4 | Breiðablik | 12 | +6 | 19 |
| 5 | Valur | 13 | -2 | 19 |
| 6 | Keflavík | 12 | -6 | 15 |
| 7 | ÍA | 12 | -7 | 15 |
| 8 | Stjarnan | 13 | -3 | 14 |
| 9 | ÍBV | 12 | -5 | 12 |
| 10 | KA | 12 | -8 | 10 |
| 11 | Þór | 13 | -21 | 8 |
| 12 | FH | 12 | -13 | 7 |