Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 02. desember 2019 20:18
Ívan Guðjón Baldursson
Ballon d'Or: Listinn sem lak rangur - Alisson besti markvörðurinn
Mynd: Getty Images
Verðlaunaafhending Ballon D'Or er í fullum gangi í París um þessar mundir og er búið að tilkynna hverjir eru í 5-10. sæti yfir bestu leikmenn heims. Það á því aðeins eftir að kynna röð fjögurra bestu leikmannanna, sem eru Lionel Messi, Virgil Van Dijk, Cristiano Ronaldo og Sadio Mane.

Þetta bindur enda á sögusagnir um að niðurstöðu kosningarinnar hefði verið lekið á netið, þar sem því var haldið fram að Lionel Messi hefði unnið og Cristiano Ronaldo endað í fjórða sæti eftir Mohamed Salah.

Ólíklegt er þó að Ronaldo vinni í ár, en hann ákvað að fljúga ekki til Parísar heldur fylgist hann með frá Mílanó.

Matthijs De Ligt var kjörinn ungstirni ársins. Kylian Mbappe var ekki gjaldgengur þar sem hann vann verðlaunin í fyrra.

Alisson var þá valinn besti markvörður heims og hlaut hann Lev Yashin verðlaunin, Yachine Trophy, í fyrsta sinn.

Topp 10:
1.
2.
3.
4.
5. Mohamed Salah (Liverpool)
6. Kylian Mbappe (PSG)
7. Alisson (Liverpol)
8. Robert Lewandowski (Bayern)
9. Bernardo Silva (Man City)
10. Riyad Mahrez (Man City)
Athugasemdir
banner
banner
banner