
Manuel Neuer og þýska landsliðið hefur lokið keppni á HM í Katar eftir slaka frammistöðu í riðlakeppninni.
Liðið tapaði gegn Japan í fyrstu umferð sem varð á endanum banabitinn. Liðið gerði svo jafntefli gegn Spáni en vann svo Kosta Ríka í gær en það dugði ekki til.
Margir hafa velt fyrir sér framtíð landsliðsins en Hansi Flick og Thomas Muller vildu ekki svara því hvort þeir væru hættir í í landsliðinu.
Manuel Neuer markvörður liðsins var spurður af því sama.
„Ég kem ef það verður kallað á mig," sagði Neuer einfaldlega.
Sjá einnig:
Neuer orðinn leikjahæsti markvörðurinn í sögu HM
Athugasemdir