Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mið 03. mars 2021 09:05
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
Brynjólfur: Svo er það bara 'god’s plan' hvað gerist
Já, ég mun alltaf skoða allt sem kemur
Já, ég mun alltaf skoða allt sem kemur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mig langar að vinna titil og við erum með lið í það
Mig langar að vinna titil og við erum með lið í það
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ég er ekkert mikið að pæla í þvi hvað er sagt og hver segir hvað, umræðan getur verið allskonar
Ég er ekkert mikið að pæla í þvi hvað er sagt og hver segir hvað, umræðan getur verið allskonar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mér líður mjög vel í tíunni, þar er ég kannski meira í boltanum
Mér líður mjög vel í tíunni, þar er ég kannski meira í boltanum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Úff, ég man bara að ég ætlaði að taka boltan en hætti við og lét hann fara. Valdi mætti og bæng mark
Úff, ég man bara að ég ætlaði að taka boltan en hætti við og lét hann fara. Valdi mætti og bæng mark
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Haha. Já, það væri helvíti skemmtilegt að vera saman í liði aftur
Haha. Já, það væri helvíti skemmtilegt að vera saman í liði aftur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Brynjólfur Andersen Willumsson er leikmaður sem vakið hefur mikla athygli. Hann hikar ekki við að skarta öðruvísi hárgreiðslum, hann hefur farið sínar leiðir þegar hann fagnar mörkum og er með sína eigin fatalínu.

Brynjólfur var mikið milli tannanna á fólki síðasta sumar, aðallega fyrir að skora ekki nægilega mikið af mörkum miðað við leik sinn út á velli. Fyrir það hefur Binni þegar svarað svo hann var ekki spurður út í það í þetta skiptið. Byrjum á hárgreiðslunum.

Bara ein spurning um þær: 'Blablabla greiðslan' var hún skot á einhvern?

„Nei haha, alls ekki þetta var bara létt grín hjá mér og Benna (rakara)," sagði Binni.

Fannst þér á einhverjum tímapunkti umræðan um þig fara yfir strikið?

„Ég er ekkert mikið að pæla í þvi hvað er sagt og hver segir hvað, umræðan getur verið allskonar. Ég einbeiti mér bara að því að standa mig vel á vellinum og hlusta á þá sem vita eitthvað um fótbolta og ég get lært af."

Það er augljóslega mikil breyting á fótboltanum sem þið spilið undir stjórn Óskars frá því Gústi var með ykkur. Þú ert núna búinn með eitt ár af „3-6-1“ og öðrum útfærslum. Hvernig hentar þetta leikkerfi þínum leik?

„Eins og ég hef sagt áður þá ert þetta allt bara fótbolti en auðvitað einhverjar breytingar og öðruvisi áherslur. Ég myndi segja að leikstíllinn henti mér mjög vel, alveg sama hvað kerfið er kallað sem við spilum."

Þegar Óskar og Dóri voru að kynna sína sýn á hlutina skildu allir á æfingu alltaf hvað væri í gangi?

„Já, þeir drilluðu sínar áherslur mjög fljótt inn og menn tóku þetta fljótt inn. Svo hefur þetta þróast og verður bara betra og betra með tímanum."

Er Óskar mikið að æsa sig á æfingum ef menn fylgja ekki fyrirmælum?

„Hann er ekkert að æsa sig eitthvað að óþörfu en hann vill hafa mikil gæði og tempó á æfingum."

Líður þér best í 'tíunni' eða ertu hrifnari af annarri stöðu?

„Mér líður mjög vel í tíunni, þar er ég kannski meira í boltanum, að tengja spil og búa til heldur en þegar ég spila sem nía. Ég fíla samt líka að vera í níunni."

Hvernig leið þér þegar Óskar sagði að þú værir besti leikmaðurinn á landinu í viðtali í fyrra? Setti það þig upp á tærnar?

„Ég hef bullandi trú á sjálfum mér og það er alltaf gaman heyra þegar þjálfarinn hefur líka mikla trú á manni. Það fær mann til þess að leggja enn meira á sig."

Að U21, þú tókst þátt í öllum leikjum sem voru í boði fyrir þig. Hvernig, ef þú horfir til baka, fannst þér þessi undankeppni?

„Mér fannst þetta mjög góð undankeppni og alltaf gaman að fá spila í þessum leikjum."

Var einhver ákveðinn tímapunktur sem þú/þið hugsuðuð að þetta væri að fara gerast, þið væruð að fara ná takmarkinu?

„Við tókum einn leik í einu og gáfum allt í hvern einasta leik og skilaði það sér á endanum."

„Það mætti segja að tímapunktarnir hafi verið eftir heimasigrana gegn Írum og svo Svíum. Þeir settu svona almennilega tóninn."


Leikirnir við Svía, hvernig upplifir þú muninn á liðinu þegar þú berð saman leikinn úti og leikinn heima?

„Við áttum fínan leik úti fáum mark á okkur snemma sem var smá högg en við lærðum af þeim leik og kláruðum seinni leikinn vel."

Þegar þú sást Valdimar skora á Írlandi, hvað hugsaðiru?

„Úff, ég man bara að ég ætlaði að taka boltan en hætti við og lét hann fara. Valdi mætti og bæng mark, maður öskraði úr gleði og fögnuði í smá stund og hugsaði litið en bara klára leikinn og síðan getur maður fagnað enn betur eftir leik."

Hver var lykilinn að þínu mati að þið náið þetta góðum árangri?

„Lykillinn var hversu mikla trú allir höfðu á verkefninu bæði þjálfarar, leikmenn og allt starfsfólkið í kringum liði."

Lokakeppnin, helduru að þú verðir valinn ef þú verður heill?

„Ég ætla bara halda áfram að æfa á fullu og vera klár þegar hópurinn verður valinn."

Að sumrinu, hvað langar þig að afreka með Breiðabliki í sumar?

„Mig langar að vinna titil og við erum með lið í það."

Ertu með eitthvað persónulegt markmið sem þú vilt gefa út varðandi markaskorun eða aðkomur að mörkum?

„Ég er ekki mikill markmiða maður, ég einbeiti mér bara að því að leggja hart að mér og bæta mig á hverjum einasta degi."

Sagt var frá því í síðustu viku að Breiðablik hefði neitað tilboði frá liði á Norðurlöndunum í Brynjólf. Hann var því spurður:

Ef það kemur tilboð frá toppliði á Norðurlöndunum fyrir mót, er það eitthvað sem þú myndir skoða?

„Já, ég mun alltaf skoða allt sem kemur."

Ertu með það sem markmið að fara út á þessu ári eða því næsta eða ertu alveg slakur yfir því?

„Ég vil fara út og stefni á að fara út en það kemur bara ljós. Ef það kemur rétta tilboðið og ég tel það vera rétta skrefið þá skoða ég það vel, svo er það bara 'god’s plan' hvað gerist."

Aðeins að bróður þínum, hvernig er að spila með Willum í U21? Þekkiru hann alveg út og inn og veistu alltaf hvar hann er?

„Já, við náum mjög vel saman og getum tengt mjög vel þegar við spilum saman en svo getur lika verið leiðinlegt fyrir báða að vera á móti hvor öðrum á æfingu, við þekkjum hvorn annan eiginlega of vel."

Willum nefndi í hinni hliðinni að þú yrðir flottur í BATE, helduru að þú myndir ná að pluma þig vel í Hvíta-Rússlandi ef áhugi kæmi þaðan?

„Haha, já. Það væri helvíti skemmtilegt að vera í sama liði og Willum aftur," sagði Binni að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner