Fotbolti.net
12.10.26 - 12:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

„Ekki eins og þetta séu Ferdinand og Vidic sem hann þarf að slá út"

Ari Leifsson hefur spilað frekar lítið eftir heimkomuna í sumar.

Ari Leifsson hefur spilað frekar lítið eftir heimkomuna í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rætt var um Stjörnuna í Innkastinu þar sem 25. umferðin í Bestu deildinni var gerð upp.

Ari Leifsson byrjaði á bekknum hjá Stjörnunni og hefur miðvörðurinn spilað takmarkað eftir komu sína frá Kolding í sumar. Þeir Sindri Þór Ingimarsson og Gustav Kjeldsen léku í hjarta varnarinnar þegar KA vann öruggan 0-3 útisigur í Garðabænum á föstudag.
„Eftir tæplega 80 mínútur koma Ari Leifsson inn á og Árni Vill, 0-3 undir á móti KA," bendir Kári Snorrason á.

„Maður var eiginlega búinn að gleyma því að Árni Villa væri þarna. Ari Leifs er ekki að ná að slá menn úr byrjunarliðinu. Hvað ætlum við að tala lengi um að hann sé að komast í eitthvað form? Hann kom fyrir ansi mörgum vikum," segir Valur Gunnarsson og bætir eftirfarandi við um Stjörnuna:

„Þegar maður horfir á þennan hóp hjá Stjörnunni þá er gjörsamlega glórulaust að við séum að tala um þá í þessum neðri hluta núna. Þetta er þvílíkt vonbrigða tímabil hjá Stjörnunni og það vita það allir. Það verður mjög fróðlegt að sjá hvað gerist í framhaldinu varðandi þjálfararáðningu og annað," bætir Valur við en þeir Heimir Guðjónsson og Rúnar Páll Sigmundsson eru hvað mest orðaðir við þjálfarastöðuna hjá Stjörnunni.

Ekki eins og þetta séu Ferdinand og Vidic
Fyrirliðinn Guðmundur Kristjánsson ákvað vegna persónulegra ástæðna að spila ekki með Stjörnunni í lokaleikjunum en hann æfir hins vegar með liðinu.

,Þess vegna finnst mér þetta svo skrítið með Ara, það er ekki eins og þetta séu Ferdinand og Vidic sem hann þarf að slá út," segir Kári.

Mynd: Twitter
Rio Ferdinand og Nemanja Vidic mynduðu hjá Manchester United eitt allra besta miðvarðapar í sögu ensku úrvalsdeildarinnar.

Ari (1998) sneri heim til Íslands í sumar eftir að hafa farið út í atvinnumennsku árið 2020. Hann lék erlendis með Strömsgodset í Noregi og Kolding í Danmörku.
Vidic og Stjörnumaðurinn Jóhann Laxdal.

Vidic og Stjörnumaðurinn Jóhann Laxdal.

Canon

Mynd: Twitter

Hver tekur við Stjörnunni?

Hver tekur við Stjörnunni?

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Innkastið - Hvaða félög taka þátt í þjálfarakaplinum?

Besta karla - Neðri hluti

#LiðLmunStig
1Valur25-531
2Stjarnan25-1231
3FH25-430
4KA25-1026
5Þór25-3324
6ÍBV25-1619
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.