Inter og Juve vilja Alisson - Man Utd vill annan Bruno - Liverpool og Arsenal fylgjast með Bastoni
   þri 03. mars 2026 23:59
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sjáðu furðulegt atvik úr landsleiknum í kvöld - „Farsi í Castellón"
PEI
Úr leiknum í kvöld.
Úr leiknum í kvöld.
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Aðdragandinn að fyrsta marki Spánar í 3-0 sigrinum gegn Íslandi var ansi sérstakur. Sveindís Jane Jónsdóttir braut af sér þegar hún lenti í samstuði við Olgu Carmonu, leikmann spænska liðsins sem gaf boltann til hliðar áður en Sveindís mætti í hana, Sveindís fékk höfuðhögg en dómari leiksins lét leikinn halda áfram. Sveindís fékk svo gult spjald í kjölfarið.

Strax í kjölfarið skoraði svo Claudia Pina með skoti rétt fyrir utan vítateiginn. Íslenska liðið sofnaði á verðinum eftir að Sveindís féll til jarðar og nýttu þær spænsku sér augnablikshikið.

Í útsendingu frá leiknum fóru myndavélarnar strax á þær Sveindísi og Olgu og sást markið því ekki fyrr en í endursýningu. „Við missum af fyrsta markinu. Hvað í ósköpunum gekk þarna á?! Ég veit ekki hvort markið telji, hér er verið að draga upp spjöld, ég átta mig engan veginn á því hvað er í gangi, en markið telur líklegast. Claudia Pina er að koma Spánverjum yfir, farsi í Castellón!" sagði Gunnar Birgisson sem lýsti leiknum á RÚV áður en hann svo sá endursýningu á atvikinu. Atvikið má sjá í færslunni hér að neðan, klippan fer í gang við það að ýta á færsluna.

Lestu um leikinn: Spánn 3 -  0 Ísland

Sveindís var spurð út í atvikið í viðtali á RÚV eftir leikinn.

„Ég fæ bara eitthvað högg á kjálkann og ég veit ekki alveg af hverju þetta er glt spjald. Ég hélt að ef maður fær höfuðhögg þá á að stoppa leikinn, en greinilega ekki í þetta skiptið."

Þorsteinn Halldórsson, þjálfari landsliðsins, var spurður út í atvikið eftir leikinn.

„„Maður er ekki endilega sáttur með fyrsta markið og aðdragandann að því, þegar það er höfuðhögg og samkvæmt reglum á að stoppa leikinn. En svona er þetta, svo fór sem fór," sagði Steini. Viðtalið við hann má sjá í spilaranum neðst.



Steini Halldórs: Samkvæmt reglum á að stoppa leikinn
Athugasemdir
banner
banner