Fotbolti.net
03.05.26 - 23:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Tveir FH-ingar fluttir á sjúkrahús eftir höfuðhögg

Ísak Óli Ólafsson

Ísak Óli Ólafsson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH tapaði fjórða leik sínum í röð í Bestu deildinni í kvöld þegar liðið beið lægri hlut gegn Fram.

FH varð fyrir áfalli þegar Ísak Óli Ólafsson, fyrirliði liðsins, og Sverrir Páll Hjaltested voru fluttir með sjúkrabíl eftir að hafa lent í samstuði við Sigurjón Rúnarsson, leikmann Fram í uppbótatíma í seinni hálfleik.
Lestu um leikinn: FH 3 - 4 Fram
Davíð Þór Viðarsson, yfirmaður fótboltamála hjá FH, segir í samtali við Vísi að þeir hafi báðir verið vankaðir og fengið heilahristing og sjúkrabíll kom og sótti þá.

FH er aðeins með eitt stig eftir fyrstu fimm umferðirnar en liðið heimsækir Breiðablik í næstu umferð þann 8. maí.

Heimild: Vísir.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.