Jason Daði Svanþórsson og Árni Vilhjálmsson voru báðir orðaðir við KR í útvarpsþætti Fótbolta.net síðastliðinn laugardag. Óskar Hrafn Þorvaldsson þekkir báða leikmenn vel en hann stýrði þeim á sínum tíma hjá Breiðabliki.
Þá hefur Amin Cosic hefur farið frábærlega af stað með KR í sumar og var umræða í útvarpsþættinum hvort Amin gæti farið út í sumar og Jason Daði Svanþórsson kæmi inn í hans stað.
„Já, Jason Daði elskar Óskar Hrafn. Hann er ekki, að ég held, bundinn neinum tryggðarböndum við Breiðablik,“ sagði Tómas Þór Þórðarson en Jason er uppalinn í Aftureldingu.

Jason er samningslaus eftir að hafa verið hjá Grimsby í tvö ár, en hann var seldur þangað frá Breiðabliki. Á nýafstöðnu tímabili kom hann aðeins við sögu í sjö leikjum sökum mikilla meiðsla.
„Hann hefur ekkert heim að gera, hann er það góður leikmaður. En ef hann kemur heim þá fer hann í KR,“ sagði Tómas jafnframt.
Þá var einnig rætt um hvert Árni Vilhjálmsson færi næst, en hann er á heimleið eftir dvöl í Sádi Arabíu ásamt eiginkonu sinni, Söru Björk Gunnarsdóttur, en hún er á leið í Hauka.
Breiðablik ræddi við Árna áður en vetrarglugginn lokaði en ekkert varð úr skiptunum. Árni var þá enn samningsbundinn Al-Sahel en samningur hans er nú runninn út og er hann á Íslandi.
Þá hefur Árni sést á leikjum á Meistaravöllum og æfði hann með KR síðasta sumar. Árni er uppalinn hjá Breiðabliki og spilaði síðast með liðinu 2021.