Fotbolti.net
04.05.26 - 16:10
Elvar Geir Magnússon

England: Geggjað sárabótamark í niðurlægingu Chelsea

England: Geggjað sárabótamark í niðurlægingu Chelsea
Canon

Mynd: EPA

Chelsea 1 - 3 Nott. Forest
0-1 Taiwo Awoniyi ('2 )
0-2 Igor Jesus ('15 , víti)
0-2 Cole Palmer ('45 , Misnotað víti)
0-3 Taiwo Awoniyi ('52 )
1-3 Joao Pedro ('90 )
Hrakfarir Chelsea halda áfram en liðið tapaði í dag á niðurlægjandi hátt á heimavelli gegn Nottingham Forest. Þetta var sjötti tapleikur Chelsea í röð.

Nottingham Forest tefldi ekki fram sínu sterkasta liði þar sem það er í miðju einvígi gegn Aston Villa í undanúrslitum Evrópudeildarinnar. Þeir sem fengu tækifærið komu öflugir inn og þessi sigur kemur Forest í mun betri stöðu í baráttunni gegn falldraugnum. Liðið er nú í sextánda sæti, sex stigum fyrir ofan fallsvæðið, og nálægt því að tryggja áframhaldandi veru í deild þeirra bestu.

Taiwo Awoniyi sem var að spila sinn 100. leik fyrir Forest skoraði með skalla á 2. mínútu og Igor Jesus tvöfaldaði forystuna út vítaspyrnu eftir galið peysutog Malo Gusto innan teigs.

Undir lok fyrri hálfleiks fékk Chelsea vítaspyrnu eftir að hinn 18 ára gamli Jesse Derry fékk þungt höfuðhögg og var borinn af velli á börum. Atvik sem leit hrikalega út.

Cole Palmer fór á vítapunktinn en Matz Sels varði. Þetta var aðeins önnur vítaspyrnan sem fer forgörðum hjá Palmer í deildinni, í 20 tilraunum, en í fyrsta sinn sem Sels ver víti í deildinni.

Awoniyi skoraði sitt annað mark og þriðja mark Forest í seinni hálfleik en í uppbótartíma minnkaði Joao Pedro muninn fyrir Chelsea með hreint sturluðu marki úr hjólhestaspyrnu. Algjör snilld og eiginlega synd að þetta hafi bara verið sárabótamark í slæmu tapi. Þetta var fyrsta deildarmark Chelsea síðan 4. mars.

Lokatölur 1-3 á Brúnni. Í kvöld mætast Everton og Manchester City á Goodison Park. Leikurinn hefst 19:00.
Jesse Derry fór af velli á börum.

Jesse Derry fór af velli á börum.

Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City7+1221
2Arsenal6+515
3Brighton6+1313
4Chelsea7+413
5Liverpool7+112
6Brentford7+510
7Everton7+110
8Leeds6+39
9Hull City7+19
10Ipswich Town7-49
11Newcastle7-48
12Aston Villa7-48
13Crystal Palace6-37
14Man Utd606
15Coventry6-66
16Nott. Forest6-35
17Fulham7-35
18Sunderland6-64
19Bournemouth6-63
20Tottenham6-63
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.