Fotbolti.net
04.10.24 - 20:47
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Ítalía: McTomiany skoraði í sigri Napoli - Lukaku með frábæra frammistöðu

Ítalía: McTomiany skoraði í sigri Napoli - Lukaku með frábæra frammistöðu
Canon

Mynd: Getty Images

Napoli er á toppi ítölsku deildarinnar en liðið lagði nýliða Como í fyrsta leik sjöundu umferðar í kvöld.

Scott McTominay kom Napoli yfir eftir aðeins 25 sekúndna leik eftir sendingu frá Romelu Lukaku.

Como jafnaði metin undir lok fyrri hálfleiks en Lukaku kom Napoli aftur yfir með marki úr vítaspyrnu snemma í seinni hálfleik. Daviid Neres innsiglaði sigur Napoli eftir undirbúning Lukaku.

Þriggja leikja taphrinu Verona lauk í kvöld en liðið vann Venezia þar sem sjálfsmark réði úrslitum. Mikael Egill Ellertsson kom inn á þegar um hálftími var til loka venjulegs leiktíma.

Verona 2 - 1 Venezia
0-1 Gaetano Oristanio ('3 )
1-1 Casper Tengstedt ('9 )
2-1 Jesse Joronen ('81 , sjálfsmark)

Napoli 3 - 1 Como
1-0 Scott McTominay ('1 )
1-1 Gabriel Strefezza ('43 )
2-1 Romelu Lukaku ('53 , víti)
3-1 David Neres ('86 )

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Roma1+43
2Inter1+33
3Lecce1+23
4Napoli1+23
5Milan1+13
6Atalanta1+13
7Juventus1+13
8Lazio1+13
9Cagliari1+13
10Udinese101
11Como101
12Sassuolo1-10
13Torino1-10
14Bologna1-10
15Frosinone1-10
16Parma1-10
17Genoa1-20
18Venezia1-20
19Monza1-30
20Fiorentina1-40
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.