mið 05. janúar 2022 11:20
Elvar Geir Magnússon
Janúarhópur Íslands - Tíu sem hafa ekki spilað landsleik
Fjórir úr Breiðabliki og fjórir úr Víkingi
Icelandair
Damir Muminovic, varnarmaður Breiðabliks, er í hópnum.
Damir Muminovic, varnarmaður Breiðabliks, er í hópnum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfari.
Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfari.
Mynd: EPA
Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfari hefur valið leikmannahóp fyrir janúarverkefni liðsins. Um er að ræða tvo vináttuleiki sem fram fara í Antalya í Tyrklandi – gegn Úganda 12. janúar og Suður-Kóreu 15. janúar.

Þessir vináttulandsleikir eru ekki spilaðir á alþjóðlegum leikdögum og því margir leikmenn sem ekki eru til taks.

„Það er mikilvægt ár framundan hjá okkur og áríðandi að nýta hvert einasta tækifæri sem við fáum til að stilla saman strengina, skoða leikmenn og halda áfram að byggja upp okkar lið til framtíðar. Leikirnir í þessum janúarglugga hafa reynst vel í gegnum tíðina og ég er viss um að svo verður líka núna," segir Arnar.

„Leikmenn þurfa að halda áfram að taka skref á sínum ferli og við þurfum jafnframt að halda áfram að taka skref sem landslið. Það eru margir áhugaverðir leikmenn í þessum hópi og ég hlakka til að vinna með þeim öllum. Þetta er alvöru gluggi til að stimpla sig inn fyrir komandi verkefni."

Í hópnum eru átta leikmenn úr íslensku deildinni, fjórir leikmenn Breiðabliks og fjórir leikmenn Víkings. Tíu í hópnum hafa ekki spilað A-landsleik; Patrik Sigurður, Hákon Rafn, Finnur Tómas, Damir, Atli Barkar, Viktor Karl, Valdimar Þór, Kristall Máni, Viktor Örlygur og Brynjólfur Willumsson.

Leikmannahópurinn:
Ingvar Jónsson - Víkingur R. - 8 leikir
Patrik Sigurður Gunnarsson - Brentford
Hákon Rafn Valdimarsson - IF Elfsborg

Finnur Tómas Pálmason - IFK Norrköping
Ísak Óli Ólafsson - Esbjerg fB - 1 leikur
Damir Muminovic - Breiðablik
Ari Leifsson - Stromsgodset IF - 1 leikur
Atli Barkarson - Víkingur R.
Guðmundur Þórarinsson - Án félags - 12 leikir
Valgeir Lunddal Friðriksson - Häcken - 1 leikur
Alfons Sampsted - Bodo/Glimt - 7 leikir
Viktor Karl Einarsson - Breiðablik
Valdimar Þór Ingimundarson - Strömsgodset IF
Kristall Máni Ingason - Víkingur R.
Stefán Teitur Þórðarson - Silkeborg IF - 7 leikir, 1 mark
Viktor Örlygur Andrason - Víkingur R.
Alex Þór Hauksson - Östers IF - 3 leikir
Höskuldur Gunnlaugsson - Breiðablik - 1 leikur
Arnór Ingvi Traustason - New England Revolution - 41 leikur, 5 mörk
Gísli Eyjólfsson - Breiðablik - 2 leikir
Viðar Ari Jónsson - Sandefjord - 5 leikir
Jón Daði Böðvarsson - Millwall - 60 leikir, 3 mörk
Sveinn Aron Guðjohnsen - IF Elfsborg - 8 leikir
Brynjólfur Willumsson - Kristiansund BK



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner