Miðjumaðurinn Júlíus Magnússon (1998) á að baki fimm A-landsleiki. Hann er leikmaður Elfsborg sem situr í 3. sæti sænsku úrvalsdeildarinnar. Hann var í fyrsta landsliðshópi Arnars Gunnlaugssonar á síðasta ári, meiddist í kjölfarið og hefur ekki verið valinn síðan.
Fimmti landsleikurinn, sá síðasti sem Júlíus kom við sögu í, var vináttuleikur gegn Svíþjóð í janúar 2023. Liðin í sænsku deildinni voru að spila um síðustu helgi og því var ekki möguleiki að velja Júlíus í leikinn gegn Japan.
Fótbolti.net ræddi við Júlíus í vikunni og var hann spurður út í landsliðið.
Fimmti landsleikurinn, sá síðasti sem Júlíus kom við sögu í, var vináttuleikur gegn Svíþjóð í janúar 2023. Liðin í sænsku deildinni voru að spila um síðustu helgi og því var ekki möguleiki að velja Júlíus í leikinn gegn Japan.
Fótbolti.net ræddi við Júlíus í vikunni og var hann spurður út í landsliðið.
Voru það vonbrigði að vera ekki í hópnum núna gegn Argentínu?
„Ég veit ekki alveg hvernig ég á að svara þessu, en jú, það voru vonbrigði. Það var kannski ekki þannig að ég hafi búist við því að fá kallið, það hefur verið svolítið stabíll hópur sem hefur verið valinn og leikmenn hafa verið valdir aftur og aftur í sömu stöðum - ekki miklar breytingar. Út frá því skilur maður það alveg."
„Ég veit líka alveg hvernig Arnar Gunnlaugsson virkar, hann vill hafa ákveðinn kjarna í liðunum sínum og byggja út frá því. En jú, það hafa verið vonbrigði að hafa ekki fengið kallið í einhverja leiki, tækifærin hafa verið af skornum skammti."
„Að sama skapi er það ansi skiljanlegt út frá þeirri stöðu sem ég spila. Ég tel að bestu leikmenn landsliðsins séu að spila í þessari stöðu eða í kringum þessa stöðu; Hákon (Arnar Haraldsson), Ísak (Bergmann Jóhannesson) og fleiri sem eru þarna. Samkeppnin er örugglega hvað hörðust þarna, og að sjálfsögðu líka fremst á vellinum."
„Þetta er því blanda af vonbrigðum og skilningi," segir Júlíus.
Eins og hann segir þá þekkir hann vel til Arnars Gunnlaugssonar en þeir unnu saman hjá Víkingi á árunum 2019-22.
Uppfærður hópur gegn Argentínu
Markverðir
Elías Rafn Ólafsson - FC Midtjylland - 14 leikir
Hákon Rafn Valdimarsson - Brentford F.C. - 21 leikur
Anton Ari Einarsson - Breiðablik - 3 leikir
Útileikmenn
Aron Einar Gunnarsson - Al Gharafa - 109 leikir, 5 mörk
Guðlaugur Victor Pálsson - Horsens - 57 leikir, 5 mörk
Dagur Dan Þórhallsson - CF Montreal - 8 leikir
Hjörtur Hermannsson - Volos F.C. - 30 leikir, 1 mark
Hörður Björgvin Magnússon - Levadiakos - 52 leikir, 2 mörk
Daníel Leó Grétarsson - Sonderjyske Fodbold - 29 leikir
Mikael Egill Ellertsson - Genoa CFC - 29 leikir, 2 mörk
Logi Tómasson - Samsunspor - 14 leikir, 1 mark
Andri Fannar Baldursson - Kasimpasa - 12 leikir
Hákon Arnar Haraldsson - LOSC Lille - 30 leikir, 3 mörk
Gísli Gottskálk Þórðarson - Lech Poznan - 2 leikir
Ísak Bergmann Jóhannesson - 1. FC Köln - 43 leikir, 6 mörk
Gylfi Þór Sigurðsson - Víkingur R. - 85 leikir, 28 mörk
Kristall Máni Ingason - SK Brann - 8 leikir
Arnór Sigurðsson - Malmö FF - 35 leikir, 2 mörk
Kristian Nökkvi Hlynsson - FC Twente - 11 leikir, 2 mörk
Jón Dagur Þorsteinsson - SK Brann - 54 leikir, 6 mörk
Albert Guðmundsson - ACF Fiorentina - 46 leikir, 14 mörk
Orri Steinn Óskarsson - Real Sociedad - 17 leikir, 9 mörk
Daníel Tristan Guðjohnsen - Malmö FF - 5 leikir




