05.08.26 - 18:23
Helgi Inguson
Byrjunarlið FH og KR: Gils utan hóps - Óskar gerir engar breytingar

Gils Gíslason er utan hóps

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gils Gíslason er utan hóps

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Klukkan 19:15 tekur FH á móti KR í 17. umferð Bestu deildar karla. Búið er að opinbera byrjunarlið leiksins.
FH situr í 12. sæti deildarinnar með 13 stig á meðan KR er í 3. sæti með 35 stig. Með sigri geta bæði lið klifið töfluna.
FH situr í 12. sæti deildarinnar með 13 stig á meðan KR er í 3. sæti með 35 stig. Með sigri geta bæði lið klifið töfluna.
Lestu um leikinn: FH 1 - 1 KR
Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, gerir tvær breytingar á sínu liði frá markalausu jafntefli gegn Fram í síðustu umferð.
Úlfur Ágúst Björnsson er farinn til Bandaríkjanna að klára nám þar og mun því ekki leika meira með FH á tímabilinu. Gils Gíslason víkur sömuleiðis úr byrjunarliðinu en hann er utan hóps í dag.
Inn koma þeir Sverrir Páll Hjaltested og Arnór Borg Guðjohnsen.
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, gerir enga breytingu á sínu liði frá sannfærandi 5-0 sigri gegn Stjörnunni fyrir 17 dögum.

Byrjunarlið FH
- 1. Jökull Andrésson (m)
- 2. Birkir Valur Jónsson
- 5. Oliver Stefánsson
- 6. Grétar Snær Gunnarsson
- 7. Kjartan Kári Halldórsson
- 10. Sverrir Páll Hjaltested
- 14. Adolf Daði Birgisson
- 17. Jóhannes Kristinn Bjarnason
- 22. Ísak Óli Ólafsson (f)
- 37. Baldur Kári Helgason
- 90. Arnór Borg Guðjohnsen
Byrjunarlið KR
- 12. Halldór Snær Georgsson (m)
- 7. Finnur Tómas Pálmason
- 9. Eiður Gauti Sæbjörnsson
- 11. Aron Sigurðarson (f)
- 17. Luke Morgan Conrad Rae
- 21. Gabríel Hrannar Eyjólfsson
- 23. Arnór Ingvi Traustason
- 26. Hrafn Tómasson
- 28. Hjalti Sigurðsson
- 45. Galdur Guðmundsson
- 77. Orri Hrafn Kjartansson