Fotbolti.net
05.08.26 - 15:32
Kári Snorrason

Skoraði gegn Jóa Kalla og sóttur til FH

Síðasta mark Andersen var gegn AB sem var undir stjórn Jóa Kalla.

Síðasta mark Andersen var gegn AB sem var undir stjórn Jóa Kalla.

Canon

Mynd: FH

FH tilkynnti í gær um komu danska framherjans Bastians Andersen. Þessi tvítugi leikmaður skrifaði undir tveggja ára samning við Fimleikafélagið.

Bastian er uppalinn hjá Randers en lék á síðasta tímabili með VSK Aarhus í dönsku C-deildinni. Þar skoraði hann tvö mörk í 19 deildarleikjum, en hann kom inn á sem varamaður í þeim öllum.
FH fær ungan danskan framherja (Staðfest)
TENGT EFNI

FH fær ungan danskan framherja (Staðfest)

Annað markanna kom gegn AB, sem þá var undir stjórn Jóhannesar Karls Guðjónssonar, núverandi þjálfara FH. Jóhannes stýrði AB fyrri hluta síðasta tímabils áður en hann tók við FH.

FH tekur á móti KR á Kaplakrikavelli klukkan 19:15 í kvöld. Bastian hefur fengið leikheimild og gæti því þreytt frumraun sína fyrir FH í leiknum.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.18+4245
2KR18+2539
3Fram18+1137
4Breiðablik18+629
5Valur18-522
6ÍA18-622
7Keflavík18-622
8Stjarnan18-1021
9ÍBV18-917
10FH18-1017
11KA18-1215
12Þór18-2615
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.