Fotbolti.net
05.08.26 - 12:52
Kári Snorrason

Misstu af Salah en eru í viðræðum við Vlahovic

Vlahovic er falur á frjálsri sölu.

Vlahovic er falur á frjálsri sölu.

Canon

Mynd: EPA

Forseti tyrkneska félagsins Besiktas staðfestir að félagið hefur átt í viðræðum við Serbann Dusan Vlahovic.

Þessi 26 ára framherji er frjáls allra mála eftir að samningur hans við Juventus rann út fyrr í sumar.

Útlit var fyrir að Mohamed Salah myndi ganga til liðs við Besiktas fyrir nokkrum vikum en félagið náði ekki saman við Egyptann og er hann nú á leið til Trabzonspor í Tyrklandi.
Viðræður Besiktas við Salah settar á ís - „Tók raunsæja ákvörðun í stað þess að friða fjöldann“
TENGT EFNI

Viðræður Besiktas við Salah settar á ís - „Tók raunsæja ákvörðun í stað þess að friða fjöldann“

Nú beina þeir sjónum sínum að Vlahovic. Vincenzo Italiano, þjálfari Besiktas, þekkir vel til Serbans en þeir störfuðu saman hjá Fiorentina fyrir rúmum fjórum árum.

Vlahovic hefur verið orðaður við ýmis stórlið á síðustu misserum þar á meðal Barcelona, Bayern, Chelsea og Newcastle.
Italiano þekkir vel til Vlahovic.

Italiano þekkir vel til Vlahovic.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.