Tammy Abraham, Ben Chilwell og Jadon Sancho hafa fengið þau skilaboð að þeir eigi ekki að mæta strax til móts við enska landsliðið.
Enska knattspyrnusambandið er að skoða brot á sóttvarnareglum en leikmennirnir þrír voru í gleðskap um helgina.
Mögulegt er að þeir verði teknir úr enska hópnum.
Enska knattspyrnusambandið er að skoða brot á sóttvarnareglum en leikmennirnir þrír voru í gleðskap um helgina.
Mögulegt er að þeir verði teknir úr enska hópnum.
Vinir Abraham skipulögðu óvænta afmælisveislu í London á laugardag en þar voru meðal annars mættir Sancho og Chilwell.
Abraham og Chilwell leika fyrir Chelsea en Sancho er hjá Dortmund.
Sex manna samkomubann er í Englandi vegna kórónuveirunnar og ljóst er að reglur voru brotnar í veislunni þar sem fleiri voru mættir þar. Abraham segir að allir gestir hafi verið hitamældir þegar þeir mættu í veisluna en hefur beðist afsökunar.
England er að fara að mæta Wales í vináttulandsleik og leikur svo gegn Belgíu og Dammörku í Þjóðadeildinni.
Athugasemdir