Fotbolti.net
05.10.22 - 15:05
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Gunnar Heiðar á skýrslu hjá ÍBV

Gunnar Heiðar á skýrslu hjá ÍBV
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Á leikskýrslu fyrir leik ÍBV og FH í Bestu deildinni í dag vekur það athygli að sjá má nafn Gunnars Heiðars Þorvaldssonar ÍBV megin.

Gunnar er skráður sem einn af þremur liðsstjórum liðsins. Hann þjálfaði í sumar Vestra en verður ekki áfram þar á næsta tímabili. Gunnar er búsettur í Eyjum.
Hermann Hreiðarsson, þjálfari ÍBV, hefur í sumar haft þá David Bell, Heimi Hallgrímsson, Todor Hristov og Marc Wilson sér til aðstoðar.

FH megin vekur það athygli að Gunnar Nielsen er ekki í leikmannahópi FH. Hann hefur verið varamaður fyrir Atla Gunnar Guðmundsson í undanförnum leikjum.

Sjá einnig:
Gengur ekki upp að vera með þjálfara búsettan í Eyjum - „Þetta ár olía á eldinn hjá mér"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.