Fotbolti.net
05.11.24 - 09:45
Elvar Geir Magnússon

Vonandi það sem koma skal frá Harry Wilson

Wilson fagnar öðru marka sinna í gær.

Wilson fagnar öðru marka sinna í gær.

Canon

Mynd: Getty Images

Marco Silva stjóri Fulham segir að endurkomusigurinn gegn Brentford í gær hafi verið verðskuldaður. Harry Wilson kom inn af bekknum þegar staðan var 0-1 en skoraði tvö lagleg mörk í uppbótartímanum og tryggði 2-1 sigur.

Silva vonast til þess að þessi tvö mörk komi Wilson almennilega í gang.
England: Ótrúleg innkoma hjá Harry Wilson í endurkomusigri
TENGT EFNI

England: Ótrúleg innkoma hjá Harry Wilson í endurkomusigri

„Hann er með auga fyrir mörkum og getur komið sér í hættulegasr stöður. Hann átti þessi mörk skilið. Þetta hefur verið erfitt tímabil fyrir hann og hann ekki fengið að spila eins margar mínútur og hann hefði viljað," segir Silva.

„Hann hefur verið á eldi með velska landsliðinu en nú gat hann hjálpað okkur með mörkunum. Hann á þessa stund skilið og ég vona að við fáum enn meira frá honum."

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.