Fotbolti.net
05.12.18 - 12:13
Elvar Geir Magnússon

Hasenhuttl nýr stjóri Southampton (Staðfest)

Hasenhuttl er 51 árs.

Hasenhuttl er 51 árs.

Canon

Mynd: Getty Images

Southampton hefur staðfest ráðningu Ralph Hasenhuttl en Austurríkismaðurinn er orðinn knattspyrnustjóri félagsins.

Hann skrifaði undir tveggja og hálfs árs samning og tekur við af Mark Hughes sem var rekinn á mánudag.

Hasenhuttl verður í stúkunni í kvöld þegar Dýrlingarnir mæta Tottenham en hans fyrsti leikur við stjórnvölinn verður gegn Cardiff á laugardaginn.
Hasenhuttl er fyrrum landsliðsmaður Austurríkis en hann hefur verið atvinnulaus síðan hann yfirgaf RB Leipzig í maí. Á stjóraferlinum hefur hann meðal annars afrekað að koma Ingolstadt upp í efstu deild í fyrsta sinn í sögu félagsins.

Southampton er í fallsæti í ensku úrvalsdeildinni með aðeins einn sigur úr fjórtán leikjum á tímabilinu.

„Sem þjálfari þá er hann með ástríðuna, kraftinn, hugmyndafræðina, vinnusemina og félagshæfileikana sem þarf hjá Southampton. Hann er með mikið hungur til að ná árangri í ensku úrvalsdeildinni og það skein af honum á fundum," segir Ralp Krueger, stjórnarformaður Southampton.

„Ralph er með hæfileikana til að kenna leikinn og þróa hæfileika. Það hefur sýnt sig og þess vegna er hann hinn fullkomni kostur fyrir okkur."

Kelvin Davis verður aðstoðarmaður Hasenhuttl en hann var í þjálfarateyminu hjá Mark Hughes og stýrir Southampton í leiknum í kvöld.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.