Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 06. apríl 2021 10:30
Magnús Már Einarsson
Pardew sér eftir danssporunum
Mynd: Getty Images
Alan Pardew, fyrrum stjóri Crystal Palace, segist sjá eftir því að hafa tekið dansspor eftir að liðið skoraði í úrslitum enska bikarsins árið 2016.

Jason Puncheon kom Crystal Palace í 1-0 á 79. mínútu gegn Manchester United í úrslitaleiknum og Pardew tók dans á hliðarlínunni í kjölfarið.

Juan Mata jafnaði tveimur mínútum síðar áður en Jesse Lingard tryggði United síðan sigur í framlengingu.

„Ég sé eftir dansinum," sagði Pardew í viðtali við FourFourTwo.

„Dóttir mín hafði sagt við mig fyrir leik, 'Þetta er nýr dans' og hann hlýtur að hafa verið í höfðinu á mér. Ég hefði ekki átt að gera þetta. Því miður man fólk eftir þessu."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner