Liverpool sýnir Senesi áhuga - Napoli kaupir Höjlund - Ensk félög sýna Conceicao áhuga
   mið 06. maí 2026 16:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Heimild: Fotbollskanalen 
Linda verðlaunuð - Veltir fyrir sér hvort Arnór ætti að kaupa hana
Kvenaboltinn
Linda Líf
Linda Líf
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Arnór Smárason
Arnór Smárason
Mynd: Hammarby
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Linda Líf Boama hefur spilað frábærlega með Kristianstad eftir að hafa gengið í raðir félagsins frá Víkingi í vetur. Hún var valin besti leikmaður sænsku deildarinnar í apríl og hefur vakið mikla athygli.

Linda hefur skorað fjögur mörk og lagt upp tvö í fyrstu fjórum umferðum deildarinnar og spilaði í síðasta mánuði sína fyrstu tvo landsleiki.

„Hún er frábær. Bæði hröð, sterk og skilvirk. Það er hægt að nýta hana í skyndisóknum en hún er líka sterk í teignum. Það er frábært að félagið fann svona góðan leikmann," sagði Tilda Persson, fyrirliði Kristianstad, eftir síðasta leik við Fotbollskanalen. Sá leikur endaði með 3-2 sigri Brommapojkarna en Linda skoraði fyrsta mark leiksins eftir undirbúning frá Persson.

Ella Lindvall er sérfræðingur um sænsku deildina og eftir síðasta leik lýsti hún Lindu sem demanti sem Kristianstad fann á Íslandi.

„Það verður örugglega sala þegar tíminn er réttur. Spurningin er hvort hún fari beint til Englands eða hvort hún geti verið áfram í sænsku deildinni. Ég veit allavega um nokkur sænsk félög sem gætu nýtt svona öflugan markaskorara. Veit Arnór Smárason ekki örugglega af henni?" veltir Lindvall fyrir sér.

Skagamaðurinn Arnór er yfirmaður fótboltamála hjá kvennaliði Hammarby sem ætlar sér stóra hluti í deildinni. Næsti leikur Kristianstad verður á laugardag þegar Norrköping kemur í heimsókn. Liðið er með níu stig eftir fjóra leiki.



Slapp
banner