Fotbolti.net
06.09.26 - 22:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalski boltinn

Vonarstjarna Ítalíu gerir langtímasamning við meistarana

Vonarstjarna Ítalíu gerir langtímasamning við meistarana
Canon

Mynd: EPA

Ítalíumeistarar Inter eru búnir að gera nýjan langtímasamning við framherjann efnilega Francesco Pio Esposito.
Njósnarar Man Utd fylgjast með Pio Esposito
TENGT EFNI

Njósnarar Man Utd fylgjast með Pio Esposito

Esposito er 21 árs gamall og hefur verið að berjast við Frakkann öfluga Marcus Thuram um byrjunarliðssæti í sterkri framlínu Inter.

Hann á 5 mörk í 9 A-landsleikjum og er talinn vera efnilegasti leikmaður sinnar kynslóðar á Ítalíu, eftir að hafa verið lykilmaður upp unglingalandsliðin.

Esposito gerir sex ára samning við Inter sem gildir til 2032 og fær um 100 þúsund evrur í vikulaun fyrir skatt, sem er þrefalt hærri upphæð en hann fékk áður.

Vonarstjarna Ítalíu gerir langtímasamning við meistarana
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.