Arsenal, Chelsea og Man Utd hafa áhuga á Vlahovic - Liverpool reynir að halda stjörnunum - City gæti krækt í Zubimendi
   mið 06. nóvember 2024 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Sveindís Jane gefur út sína aðra bók
Bókin nýja.
Bókin nýja.
Mynd: Aðasend
Sveindís fagnar marki með landsliðinu.
Sveindís fagnar marki með landsliðinu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ný barnabók eftir Sæmund Norðfjörð og Sveindísi Jane Jónsdóttur, leikmann Vfl Wolfsburg í Þýskalandi og íslenska landsliðsins, kemur í búðir 13. og 14. nóvember næstkomandi.

Hægt er að tryggja sér eintak í forsölu, strax í dag, inni á www.sveindisjane.is. Bókin ber heitið Sveindís Jane - saga af stelpu í landsliði og vill Sveindís með útgáfu bókarinnar veita ungum lesendum innblástur til að stunda reglubundna hreyfingu.

Bókin hvetur lesendur til að eltast við drauma sína og stökkva á tækifæri þrátt fyrir að ýmsar áskoranir kunni að verða á leiðinni. Sveindís segir mikilvægt að efla sjálfsmynd ungmenna, hvetja þau áfram og stuðla að jákvæðum samskiptum í leik og sporti. Reynsla hennar og saga hafi verið innblástur sem bókin byggir á og hún vilji koma á framfæri við ungt fólk.

„Það er einlæg von mín að bókin sem við Sæmundur skrifuðum verði börnum hvatning til að láta að sér kveða í íþróttum, en sem dæmi þá hóf ég ekki að æfa fótbolta, fyrr en ég var 9 ára," segir Sveindís Jane í fréttatilkynningunni.

„Saga mín í fótboltanum er saga stelpu af Reykjanesi sem var send í markið þar sem enginn hafði trú á mér úti á vellinum. Það átti eftir að breytast og fljótlega eignaðist ég draum um að ná langt í heimi knattspyrnunnar."

„Nú er ég á góðri leið, spila með einu sterkasta félagsliði heims, hef staðið í víglínu íslenska landsliðsins og framundan eru fleiri ævintýri. Bókin segir sögu mína með skáldlegu ívafi, en aðalatriðin eru til staðar og vonandi veitir bókin lesendum bæði gleði og innblástur."


Það er LOKI ehf. sem gefur út bókina sem Sveindís vann í samstarfi við Sæmund Norðfjörð framkvæmdastjóra. Hann segir mikilvægt að gefa út aðgengilegar bækur fyrir yngri lesendur, sem feli í sér jákvæð skilaboð og eru um leið skemmtilegar aflestrar.

„Það hefur verið samfellt sólskinsverkefni að vinna að útgáfu bókanna um Sveindísi Jane Jónsdóttur og ég er verulega spenntur fyrir nýju bókinni," sagði Sæmundur í sömu fréttatilkynningu.

„Fyrri bókin var önnur mest selda barnabók síðasta árs og fékk mjög lofsamlega dóma. Sú síðari gefur þeirri fyrri ekkert eftir í spennu og almennri skemmtun. Sveindís er góð fyrirmynd innan vallar sem utan og hefur unnið hylli margra helstu sparkspekinga heims fyrir ógnarhraða og marksækni. Ekki síður hefur hún unnið hylli aðdáenda sinna með einlægri og fallegri framkomu. Það er því með miklu stolti sem við hjá LOKA ehf. kynnum nýju bókina. Við erum ekki síst stolt yfir því að gefa út bók sem við teljum að höfði til barna og ýti undir forvitni þeirra og lestraráhuga.“
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner