Man City nálægt því að krækja í Anderson - Liverpool vill Diomande til að fylla skarð Salah
banner
laugardagur 7. mars
Undankeppni HM 2027
þriðjudagur 3. mars
Undankeppni HM kvenna
fimmtudagur 26. febrúar
Vináttulandsleikur
miðvikudagur 25. febrúar
Úrslitaleikur Reykjavíkurmótsins
miðvikudagur 18. febrúar
Evrópubikarinn - 8-liða úrslit
laugardagur 14. febrúar
Lengjubikar karla - A-deild, riðill 1
miðvikudagur 11. febrúar
Evrópubikarinn - 8-liða úrslit
fimmtudagur 18. desember
Sambandsdeildin
fimmtudagur 27. nóvember
miðvikudagur 19. nóvember
Evrópubikarinn - 16-liða úrslit
sunnudagur 16. nóvember
Undankeppni HM
fimmtudagur 13. nóvember
Undankeppni EM U21
Undankeppni HM
miðvikudagur 12. nóvember
Evrópubikarinn - 16-liða úrslit
fimmtudagur 6. nóvember
Sambandsdeildin
miðvikudagur 29. október
Þjóðadeild kvenna - Umspil
sunnudagur 26. október
Besta-deild karla - Efri hluti
föstudagur 24. október
Þjóðadeild kvenna - Umspil
fimmtudagur 23. október
Sambandsdeildin
miðvikudagur 22. október
Evrópukeppni unglingaliða
mánudagur 20. október
Besta-deild karla - Efri hluti
miðvikudagur 15. október
Evrópubikar kvenna
þriðjudagur 14. október
Undankeppni EM U21
mánudagur 13. október
Undankeppni HM
laugardagur 11. október
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
föstudagur 10. október
Undankeppni HM
Undankeppni EM U21
fimmtudagur 9. október
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
miðvikudagur 8. október
Evrópubikar kvenna
mánudagur 6. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
sunnudagur 5. október
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
laugardagur 4. október
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 3. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
fimmtudagur 2. október
Sambandsdeildin
miðvikudagur 1. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
Evrópukeppni unglingaliða
þriðjudagur 30. september
Besta-deild kvenna - Efri hluti
mánudagur 29. september
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 28. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
laugardagur 27. september
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Lengjudeild karla - Umspil
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 26. september
Fótbolti.net bikarinn
mánudagur 22. september
Besta-deild karla - Efri hluti
miðvikudagur 17. september
Lengjudeild karla - Umspil
mánudagur 15. september
Besta-deild karla
laugardagur 7. mars
Championship
Charlton Athletic - Birmingham - 15:00
Bristol City - Coventry - 15:00
Sheffield Utd - West Brom - 15:00
Ipswich Town - Leicester - 15:00
Hull City - Millwall - 12:30
Derby County - Sheff Wed - 15:00
Swansea - Stoke City - 15:00
Blackburn - Portsmouth - 12:30
FA Cup
Mansfield Town - Arsenal - 12:15
Wrexham - Chelsea - 17:45
Newcastle - Man City - 20:00
Bundesligan
Heidenheim - Hoffenheim - 14:30
Freiburg - Leverkusen - 14:30
RB Leipzig - Augsburg - 14:30
Köln - Dortmund - 17:30
Wolfsburg - Hamburger - 14:30
Mainz - Stuttgart - 14:30
Vináttuleikur
Uruguay U-17 - Ecuador U-17 - 20:00
Serie A
Cagliari - Como - 14:00
Juventus - Pisa - 19:45
Atalanta - Udinese - 17:00
Úrvalsdeildin
Nizhnyi Novgorod - Sochi - 16:00
Rostov - Baltica - 13:30
La Liga
Athletic - Barcelona - 20:00
Osasuna - Mallorca - 13:00
Atletico Madrid - Real Sociedad - 17:30
Levante - Girona - 15:15
lau 07.mar 2026 09:00 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magazine image

UTAN VALLAR: Rekstrartekjur KR hækkuðu um 140 milljónir króna á milli ára

Í ársreikningi KR fyrir árið 2025 má sjá að rekstrartekjur jukust mikið á milli ára, launagreiðslur hækkuðu umtalsvert, eignir hækkuðu um meira en tvo þriðjunga, skuldir hækkuðu um ríflega fjórðung og eigið fé batnaði þó nokkuð.

Greinin var einnig birt á utanvallar.is

Rekstrartekjur KR hækkuðu um 140,5 milljónir króna á milli ára sem samsvarar 36,5% tekjuvexti. Þessum mikla vexti má að mestu leyti rekja til tekjuliðarins Auglýsingar og samstarfsaðilar sem hækkaði um 91 milljón króna á milli ára, tæplega tvöföldun frá því sem þessi tekjuliður var árið 2025. Einnig jukust tekjur af félagaskiptum á milli ára þó nokkuð, eða um rúmlega 31,5 milljónir króna. Þessar tekjur eru að öllum líkindum að langmestu leyti vegna félagaskipta Benónýs Breka Andréssonar til Stockport í janúar 2025 og félagaskipta Jóhannes Kristins Bjarnasonar til Kolding sumarið 2025. Þá hækkuðu miðasölutekjur líka um tæpleg 65,4% á milli ára, þrátt fyrir að KR byrjaði ekki að spila í Frostaskjóli fyrr en í lok júlí. Heilt yfir hafa rekstrartekjur KR hækkað um 213,7 milljónir króna frá árinu 2021, sem samsvarar tæplega 68,7% vexti.

Rekstrargjöld KR námu 485,4 milljónum króna á síðasta ári og jukust um 116,4 milljónir króna á milli ára, ríflega 31,5% aukning. Allir útgjaldaliðir KR jukust á milli ára en það voru þó laun og launatengd gjöld sem jukust mest. Sá gjaldaliður hækkaði um 85,7 milljónir króna á milli ára sem samsvarar 37,8% hækkun. Þessi útgjaldaliður er sundurliðaður í skýringum ársreikningsins. 

Þar er honum skipt niður í laun, launatengd gjöld, og verktakalaun. Í krónum talið hækkaðu verktakalaunin mest, um tæplega 56,2 milljónir króna, en hlutfallsleg aukning var mest í launum, ríflega 263%. Það á sér eðlilega skýringu þar sem einungis eitt stöðugildi var árið 2024 en þau voru orðin þrjú undir lok síðasta árs.

Þá hefur launahlutfall KR verið nokkuð stöðugt síðustu fimm árin og ekki sveiflast of mikið. Á síðasta ári var það 59,6%, það hæsta sem það hefur verið á þessu fimm ára tímabili en launahlutfallið hefur að meðaltali verið 56,0%.

Uppsöfnuð afkoma KR síðustu fimm árin er jákvæð um tæplega 3 milljónir króna. Ef litið er á rekstrarafkomuna og leikmannasölur eru teknar út fyrir sviga má sjá að uppsafnað tap KR er 160 milljónir króna síðustu fimm árin. 

Eignir KR námu 169,2 milljónum króna í árslok 2025 og jukust um 69,8 milljónir króna á milli ára, tæplega 70,2% hækkun. Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur jukust mest á milli ára með rúmlega 76,2 milljón króna aukningu. Sá liður er þó ekki sundurliðaður neitt frekar í skýringum ársreikningsins.

Handbært fé KR lækkaði um 12,7 milljónir króna á milli ára og stóð í 6,7 milljónum króna í árslok 2025. Í sjóðstreymisyfirlitinu má sjá að handbært fé til rekstrar var 29,6 milljónir króna. Fjárfestingarhreyfingar voru jákvæðar um 25,5 milljónir króna þökk sé tekna vegna sölu leikmanna og þá voru fjármögnunarhreyfingar neikvæðar um 8,6 milljónir krónur.

Veltufjárhlutfall KR var 97,1% í árslok 2025 og hefur farið upp á við síðustu árin sem er jákvætt fyrir KR.

Skuldir KR hækkuðu um 34,9 milljónir króna á milli ára sem samsvarar 23,3% vexti. Bróðurpart hækkunarinnar má rekja til viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir sem hækkuðu um 52,6 milljónir króna. Hins vegar lækkuðu skuldir KR við lánastofnanir á síðasta ári, sem verður að teljast fagnaðarefni. Í árslok 2024 var yfirdráttur KR hátt í 21 milljón króna, en í árslok 2025 nemur yfirdrátturinn 5,5 milljónum króna. 

Skuldahlutfall KR var 109,2% í árslok 2025 og lækkaði hressilega á milli ára, en skuldahlutfallið var 150,8% árið 2024. Á síðustu fimm árum hefur skuldahlutfallið að meðaltali verið 149,3%

Eigið fé KR var neikvætt um 15,5 milljónir króna á síðasta ári en þar sem KR var rekið með hagnaði í ár batnaði eigið fé KR um ríflega 35 milljónir króna. Eigið fé KR hefur verið neikvætt um nokkurra ára skeið en það var síðast jákvætt árið 2019. Síðustu tvö ár hefur þó eigið fé KR batnað þar sem félagið hefur verið rekið með hagnaði.


Athugasemdir
banner