Fotbolti.net
07.05.26 - 11:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Dagur Fjeldsted frá næstu vikurnar

Dagur Fjeldsted frá næstu vikurnar
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Dagur Örn Fjeldsted (2005), kantmaður Breiðabliks, verður ekki með næstu vikurnar vegna meiðsla.

Hann meiddist á ökkla á æfingu, liðböndin sködduðust, og hann spilar ekki fyrr en í fyrsta lagi í næsta mánuði.
Dagur spilaði í háskólaboltanum í Bandaríkjunum fyrri hluta árs en sneri heim til Íslands í síðasta mánuði og hafði verið í leikmannahópi Breiðabliks í síðustu leikjum, án þess þó að koma við sögu.

Breiðablik situr í 3. sæti deildarinnarm með ellefu stig eftir fimm umferðir og mætir næst FH á heimavelli á föstudasgskvöld.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.