Fotbolti.net
07.07.26 - 13:46
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Cole Campbell að yfirgefa Dortmund og fer til nýliðanna

Cole Campbell að yfirgefa Dortmund og fer til nýliðanna
Canon

Mynd: EPA

Bandaríski Íslendingurinn Cole Campbell er á förum frá Dortmund og á leið til Elversberg. Það er Florian Plettenberg hjá Sky í Þýskalandi sem greinir frá.

Samkomulag um kaup er í höfn og ákvæði er í samningnum um að Dortmund geti keypt hann til baka.

Cole er á leið í læknisskoðun í vikunni og mun skrifa undir langtímasamning.
Cole er tvítugur kantmaður sem var á mála hjá FH og Breiðabliki áður en hann fór til Dortmund þegar hann varð 16 ára. Hann var í janúar lánaður til Hoffenheim og kom við sögu í fimm leikjum með liðinu seinni hluta tímabilsins.

Elversberg endaði í 2. sæti þýsku B-deildarinnar í vetur og verður í Bundesliga, efstu deild, á komandi tímabili. Fyrr í sumar var Cole orðaður við Celtic í Skotlandi en hann virðist á leið til Elversberg.

Cole lék með U17 landsliði Íslands en ákvað svo að spila fyrir Bandaríkin. Rakel Björk er móðir Cole og faðir hans er Lance Campbell.
Cole Campbell að yfirgefa Dortmund og fer til nýliðanna
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.