Fotbolti.net
07.07.26 - 14:33
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Guðmar Gauti á leið í ÍA

Guðmar Gauti á leið í ÍA
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét

ÍA er samkvæmt heimildum Fótbolta.net að fá Guðmar Gauta Sævarsson í sínar raðir frá Fylki, einungis er spurning hvenær hann skiptir yfir. Hann er með lausan samning í haust og er búinn að ná samkomulagi um að ganga í raðir ÍA eftir tímabilið, en gæti skipt um félag stax í glugganum ef félögin ná samkomulagi sín á milli.

Guðmar Gauti, sem er uppalinn hjá Fylki, er fæddur árið 2008 og þykir mikið efni. Hann er unglingalandsliðsmaður sem hefur verið á blaði hjá félögum erlendis.

Hann er sóknarmaður sem kom við sögu í 14 leikjum með Fylki í Lengjudeildinni í fyrra og skoraði eitt mark, en hefur ekkert komið við sögu með meistaraflokki í ár. Hann ristarbrotnaði í vetur og fór í aðgerð vegna meiðslanna.
Hann á að baki 15 leiki fyrir unglingalandsliðin og hefur í þeim skorað þrjú mörk. Hann var í æfingahópi U19 landsliðsins í byrjun árs.

Valur reyndi að kaupa Guðmar Gauta fyrir rúmu ári síðan en Fylkir hafnaði. Hann hefur farið erlendis og æft með Valladolid á Spáni og Lyngby í Danmörku.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.