Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 07. ágúst 2022 16:06
Stefán Marteinn Ólafsson
Byrjunarlið FH og KA: Steven Lennon og Hallgrímur Mar byrja
FH gerir eina breytingu - KA gerir þrjár breytingar
Steven Lennon snýr aftur í lið FH
Steven Lennon snýr aftur í lið FH
Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Klukkan 17:00 eigast við FH og KA á Kaplakrikavelli þegar 16.umferð Bestu deildar karla hefur göngu sína í dag með fjórum leikjum.

Eiður Smári Guðjohnsen og Sigurvin Ólafsson freista þess að ná í sinn fyrsta sigur frá því þeir tóku við stjórnartaumum FH og sömuleiðis fyrsta sigur FH í deildinni síðan í 6.umferð þegar þeir höfðu betur gegn ÍBV en það fara að verða tæpir 3 mánuðir síðan.
KA freistar þess hinsvegar að komast aftur á sigurbraut eftir tap í síðustu umferð gegn KR en KA eru í harðri baráttu um evrópusæti.


Lestu um leikinn: FH 0 -  3 KA

Heimamenn í FH gera eina breytingu á sínu liði frá síðasta leik sínum gegn Val en inn í liðið kemur Steven Lennon fyrir Davíð Snær Jóhannsson.

KA gerir þá þrjár breytingar á sínu liði og inn koma Ívar Örn Árnason, Hallgrímur Mar Steingrímsson og Bryan Van De Bogaert fyrir þá Ásgeir Sigurgeirsson, Þorra Mar Þórisson og Gaber Dobrovoljc .


Byrjunarlið FH:
1. Gunnar Nielsen (m)
3. Haraldur Einar Ásgrímsson
4. Ólafur Guðmundsson
6. Eggert Gunnþór Jónsson
7. Steven Lennon
8. Kristinn Freyr Sigurðsson
9. Matthías Vilhjálmsson (f)
10. Björn Daníel Sverrisson
16. Guðmundur Kristjánsson
22. Ástbjörn Þórðarson
29. Vuk Oskar Dimitrijevic

Byrjunarlið KA:
12. Kristijan Jajalo (m)
0. Hallgrímur Mar Steingrímsson
3. Dusan Brkovic
4. Rodrigo Gomes Mateo
5. Ívar Örn Árnason
7. Daníel Hafsteinsson
9. Elfar Árni Aðalsteinsson
21. Nökkvi Þeyr Þórisson
22. Hrannar Björn Steingrímsson
26. Bryan Van Den Bogaert
30. Sveinn Margeir Hauksson
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner