07.08.26 - 14:36
Kári Snorrason
Sameiginlegt byrjunarlið Fram og KR

Aron Sig og Chopart eru báðir á sínum stað í liðinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Viktor Freyr vermir markið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hrafn Tómasson er aftastur á miðju.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fred er í holunni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eiður Gauti leiðir línuna.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Sig og Chopart eru báðir á sínum stað í liðinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fram tekur á móti KR í Úlfarsárdal á mánudag. Um er að ræða liðin sem eru í 2. og 3. sæti deildarinnar.
Af því tilefni fór Fótbolti.net í samkvæmisleik og stillti upp sameiginlegu byrjunarliði liðanna tveggja.
Bæði lið spila með þriggja manna varnarlínu og er haldið í sama upplegg í sameiginlega liðinu. Farið er í kennslubók Óskars Hrafns og stillt upp í fremur sóknarsinnað lið.
Alls eru KR-ingar með sex fulltrúa í liðinu en Framarar með fimm.
Af því tilefni fór Fótbolti.net í samkvæmisleik og stillti upp sameiginlegu byrjunarliði liðanna tveggja.
Bæði lið spila með þriggja manna varnarlínu og er haldið í sama upplegg í sameiginlega liðinu. Farið er í kennslubók Óskars Hrafns og stillt upp í fremur sóknarsinnað lið.
Alls eru KR-ingar með sex fulltrúa í liðinu en Framarar með fimm.
Í markinu stendur Viktor Freyr Sigurðsson sem var frábær á síðasta tímabili en aðeins hefur dregið undan honum á núverandi tímabili. Engu að síður frábær markvörður og hefur betur í samkeppninni við Halldór Snæ Georgsson.
Kennie Chopart er einn þriggja hafsentana og þarf að sætta sig við að vera aðeins aftar á vellinum í þetta sinn. Með honum er liðsfélagi hans Þorri Stefán Þorbjörnsson og Finnur Tómas Pálmason.
Sigurjón Rúnarsson, miðvörður Fram, gerði tilkall í liðið en þarf að sætta sig við bekkjarsetu í þetta sinn. Sama má segja um Ástbjörn Þórðarson sem hefði getað farið hægra megin í vörnina og Chopart gæti farið upp í hægri vængbakvarðarstöðuna sem hann þekkir vel.
Það verður hart barist á miðjunni og þar eru þrír duglegir saman komnir. Hrafn Tómasson er aftastur en hann hefur verið frábær á tímabilinu. Þar fyrir framan eru þeir Arnór Ingvi Traustason og Freyr Sigurðsson.
Fyrrum KR-ingurinn, Ægir Jarl Jónasson, hefur verið frábær á miðjunni hjá Fram í sumar og er hann einn af fyrstu mönnum inn af bekknum.
Á köntunum tveimur eru þeir Luke Rae og Aron Sigurðarson. Aron eflaust auðveldasta val liðsins en honum er ýtt út á kant til að koma Fred Saravia inn í holuna.
Jason Daði Svanþórsson hefur ekki komið nægilega mikið við sögu hjá KR til þess að fá kallið. En leikmaður af hans gæðaflokki gerir svo sannarlega tilkall í liðið.
Eiður Gauti Sæbjörnsson leiðir línuna og hefur þar betur gegn Atla Þór Jónassyni, fyrrum samherja sínum í HK, í samkeppni um fremstu stöðuna.


Viktor Freyr vermir markið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hrafn Tómasson er aftastur á miðju.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fred er í holunni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eiður Gauti leiðir línuna.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
