Fotbolti.net
07.09.19 - 16:38
Brynjar Ingi Erluson

Javi Gracia rekinn frá Watford (Staðfest)

Javi Gracia er farinn frá Watford

Javi Gracia er farinn frá Watford

Canon

Mynd: Getty Images

Enska úrvalsdeildarfélagið Watford er búið að reka Javi Gracia frá félaginu en þetta kom fram í tilkynningu frá félaginu nú rétt í þessu.
Gracia tók við Watford í janúar á síðasta ári en hann kom liðinu í úrslitaleik FA-bikarsins á síðustu leiktíð þar sem liðið tapaði fyrir Manchester City, 6-0.

Byrjun Watford á þessari leiktíð hefur verið afar erfið en liðið hefur aðeins fengið eitt stig úr fyrstu fjórum leikjunum.

Enskir miðlar greindu frá því í dag að Gracia gæti verið á leið út og nú er Watford búið að staðfesta það.

Quique Sanchez Flores er talinn líklegastur til að taka við Watford en hann þjálfaði liðið tímabilið 2015-2016.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.