Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 08. apríl 2021 18:50
Aksentije Milisic
Segir að Granada geti komið á óvart gegn Man Utd
Quina í leik með West Ham á sínum tíma.
Quina í leik með West Ham á sínum tíma.
Mynd: Getty Images
Domingos Quina, leikmaður Granada sem er á láni frá Watford, segir að lið sitt geti komið á óvart í Evrópudeildinni og slegið Manchester United úr leik.

Liðin mætast í kvöld í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar en leikurinn í kvöld fer fram á Spáni.

Þessi Portúgalski miðjumaður hefur spilað vel með Granada og fengið að njóta sín betur heldur en hann hefur gert hjá Watford hingað til.

„Auðvitað getum við komið á óvart, þetta er fótbolti, maður veit aldrei," sagði hinn 21 árs gamli Quina.

„Napoli var sigurstranglegra liðið gegn okkur í 32-liða úrslitunum en við unnum einvígið. Við þurfum bara að trúa, leyfa okkur að dreyma og þá er allt hægt."

„Við getum komið fólki á óvart. Við munum berjast allt til enda og stjórinn lætur okkur trúa á að það sé allt hægt."

Leikurinn í kvöld hefst klukkan 19:00 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner