Lars Lagerback kominn í starf í Svíþjóð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Lars Lagerback, fyrrum þjálfari íslenska landsliðsins, er kominn í nýtt starf í Svíþjóð.
Þessi 77 ára gamli Svíi gerði stórkostlega hluti með íslenska landsliðið eins og alþjóð veit en hann stýrði liðinu frá 2011-2016 ásamt Heimi Hallgrímssyni. Liðið fór á EM 2016 og vann England í 16-liða úrslitum.
Hann er kominn í félagsliðaboltann í Svíþjóð en hann verður aðstoðarþjálfari Gif Sundsvall. Hann verður einhverskonar ráðgjafi Per Joar Hansen, sem er nýráðinn þjálfari liðsins.
Lars stýrði síðan norska landsliðinu frá 2017-2020 en þar var Hansen aðstoðarþjálfari.
„Ég verð ekki hér að fullu og ekki einu sinni nálægt því. Þá ákveður Per hvað ég get gert hér og í fjarlægð," sagði Lars.
Sundsvall féll úr næst efstu deild á síðustu leiktíð.

Heimild: Fotbollskanalen