Milan vann kappið um Gila - Real fær helming

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Fabrizio Romano hefur sett „here we go!" stimpilinn sinn á félagaskipti varnarmannsins Mario Gila frá Lazio til Milan.

TENGT EFNI
Mario Gila gæti fyllt í skarðið fyrir Huijsen
Gila er spænskur miðvörður sem hefur verið eftirsóttur á síðustu árum. Í fyrra var hann meðal annars orðaður við Chelsea og PSG auk ýmissa stórvelda en Lazio vildi 50 milljónir evra til að selja hann, svo ekkert varð úr skiptunum.
Núna á Gila, 25 ára, aðeins eitt ár eftir af samningi og hefur tilkynnt stjórnendum að hann vilji ekki endurnýja við félagið. Hann vill reyna fyrir sér hjá nýjum vinnuveitendum.
Napoli, Juventus og Inter voru meðal áhugasamra félaga en Milan vann kapphlaupið að lokum og greiðir 30 milljónir evra fyrir Gila.
Hann gerir fimm ára samning við Milan og fær Real Madrid 50% af kaupverðinu, eða um 15 milljónir evra. Gila var á mála hjá Real Madrid í fjögur ár frá 2018 til 2022.