Víkingur hafnaði tilboði í Óskar sem skrifaði undir nýjan samning

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hafnaði Víkingur nokkuð nýlega tilboði í Óskar Borgþórsson (2003) frá sænska félaginu GAIS. Í Innkastinu í gærkvöldi kom fram að tilboðið hefði verið nokkuð gott.
Óskar hefur leikið mjög vel með Vikingi frá komu sinni frá Sogndal í Noregi fyrir ári síðan og hefur verið einn besti leikmaður Íslandsmótsins í ár.

TENGT EFNI
Útvarpsþátturinn - Sá glaðasti og úrvalslið 1-11
Nýlega framlengdi Óskar samning sinn við Víking um ár til viðbótar en nú er hann samningsbundinn út tímabilið 2029. Víkingur hefur ekki tilkynnt um framlenginguna en á heimasíðu KSÍ má sjá að nýr samningur tók gildi 1. júlí.
Óskar hefur skorað átta mörk og lagt upp sjö í 14 deildarleikjum á tímabilinu og skoraði eitt mark í bikarnum. Hann lék fyrr á þessu ári sinn fyrsta A-landsleik þegar Ísland mætti Mexíkó í vináttulandsleik.
Víkingur er á toppi Bestu deildarinnar og er sem stendur í Evrópueinvígi gegn ungverska liðinu Györ. Víkingur leiðir 1-0 eftir fyrri leik liðanna en Nikolaj Hansen skoraði eina mark leiksins undir lokin þegar hann fylgdi á eftir skalla frá Óskari. Sigurvegari einvígisins fer í 2. umferð forkeppninnar í Meistaradeildinni.
GAIS hefur rætt við Jóhann Berg Guðmundsson um mögulegan samning og Róbert Frosti Þorkelsson er leikmaður liðsins.
Hægt er að hlusta á Innkastið og umræðu um Óskar Borgþórsson í spilaranum hér að neðan.