Fotbolti.net
08.09.26 - 19:40
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalski boltinn

Lautaro hafnaði viðræðum við Barcelona

Lautaro skoraði tvennu í frábærum endurkomusigri gegn Napoli um helgina.

Lautaro skoraði tvennu í frábærum endurkomusigri gegn Napoli um helgina.

Canon

Mynd: EPA

Argentínski framherjinn Lautaro Martínez elskar lífið hjá Ítalíumeisturum Inter og vill ekki yfirgefa félagið þrátt fyrir áhuga stórvelda utan landsteinanna.
Spánarmeistarar Barcelona settu sig í samband við Inter í sumar en Lautaro neitaði að hefja viðræður við stórveldið. Fleiri risafélög á borð við Arsenal og Paris Saint-Germain hafa sýnt honum áhuga, en Lautaro vill ekki flytja frá Mílanó.

Lautaro er 29 ára gamall og með þrjú ár eftir af samningi. Beppe Marotta yfirmaður fótboltamála var spurður út í orðrómana varðandi Lautaro.

„Lautaro hafnaði að fara í viðræður við Barcelona. Við viljum ekki selja Lautaro, við þurfum á honum að halda ef við ætlum að halda áfram að vinna titla," sagði Marotta.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.