Fotbolti.net
08.11.19 - 22:14
Ívan Guðjón Baldursson

Spánn: Botnliðið stöðvaði toppliðið

En Nesyri og Mesa björguðu stigi fyrir botnliðið.

En Nesyri og Mesa björguðu stigi fyrir botnliðið.

Canon

Mynd: Getty Images

<b>Real Sociedad 1 - 1 Leganes</b>
1-0 Mikel Merino ('63)
1-1 Youssef En Nesyri ('78)
<u>Rautt spjald:</u> K. Rodrigues, Leganes ('97)
Real Sociedad var ásamt Barcelona og Real Madrid á toppi spænsku deildarinnar fyrir leik helgarinnar, á heimavelli gegn botnliði Leganes.

Staðan var markalaus eftir fyrri hálfleik þar sem heimamenn voru betri en áttu í erfiðleikum með að finna glufur á vörn gestanna.

Í síðari hálfleik skoraði Mikel Merino, fyrrum leikmaður Newcastle, með skalla eftir hornspyrnu frá Adnan Januzaj, sem var hjá Manchester United.

Gestirnir frá Leganes reyndu að bregðast við og það tókst stundarfjórðungi síðar, þegar marokkóska framherjanum Youssef En Nesyri tókst að jafna með skallamarki eftir fyrirgjöf frá Roque Mesa, fyrrum leikmanni Swansea.

Sociedad er nú á toppinum með eins stigs forystu en Real og Barca eiga tvo leiki inni. Sociedad gæti fallið niður um fimm sæti um helgina. Leganes er aðeins með sex stig eftir þrettán umferðir.

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona11+3430
2Atletico Madrid11+1428
3Real Madrid11+1827
4Betis11+323
5Real Sociedad11019
6Sevilla11-217
7Athletic10+415
8Deportivo11+114
9Villarreal11012
10Celta11012
11Alaves11-212
12Vallecano10-512
13Getafe11-812
14Espanyol11-111
15Osasuna11-1111
16Racing Santander11-1411
17Elche11-410
18Levante11-510
19Valencia11-99
20Malaga11-135
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.