Wilson óvænt að semja aftur - Man Utd bætir öðrum miðjumanni Forest á óskalistann - City að klára kaup - Real fylgdist með Tonali
   sun 08. desember 2024 13:28
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ítalía: Fiorentina á flugi - Kærkominn sigur hjá Kristófer

Fiorentina 1 - 0 Cagliari
1-0 Danilo Cataldi ('24 )


Fiorentina er á svakalegu skriði um þessar mundir en liðið lagði Cagliari af velli í ítölsku deildinni í dag.

Danilo Cataldi skoraði eina markið þegar fyrri hálfleikur var rúmlega hálfnaður en það gerði hann með góðu skoti í D-boganum. Albert Guðmundsson er að koma til baka eftir meiðsli og hann spilaði frá 67. mínútu.

Þetta var áttundi sigur Fiorentina í röð í deildinni en liðið er í 4. sæti með 31 stig, jafn mörg stig og Inter og stigi á eftir Napoli sem situr í 2. sæti.

Kristófer Jónsson var á bekknum þegar Triestina vann vægast sagt kærkominn sigur í C-deildinni á Ítalíu í dag.

Triestina lagði L.R. Vicenza 2-0. Liðið er í næst neðsta sæti deildarinnar með tíu stig eftir 18 umferðir. Þetta var fyrsti sigur liðsins síðan í fyrstu umferð.


Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 28 22 1 5 64 22 +42 67
2 Milan 28 17 9 2 44 20 +24 60
3 Napoli 28 17 5 6 43 29 +14 56
4 Como 28 14 9 5 46 21 +25 51
5 Roma 28 16 3 9 38 21 +17 51
6 Juventus 28 14 8 6 50 28 +22 50
7 Atalanta 28 12 10 6 39 26 +13 46
8 Bologna 28 11 6 11 37 34 +3 39
9 Sassuolo 27 11 5 11 34 36 -2 38
10 Udinese 28 10 6 12 33 41 -8 36
11 Lazio 27 8 10 9 26 27 -1 34
12 Parma 28 8 10 10 20 32 -12 34
13 Genoa 28 7 9 12 34 40 -6 30
14 Cagliari 28 7 9 12 30 38 -8 30
15 Torino 28 8 6 14 28 49 -21 30
16 Lecce 28 7 6 15 20 37 -17 27
17 Fiorentina 28 5 10 13 30 42 -12 25
18 Cremonese 28 5 9 14 22 40 -18 24
19 Verona 28 3 9 16 22 49 -27 18
20 Pisa 28 1 12 15 20 48 -28 15
Athugasemdir
banner