Fotbolti.net
09.04.26 - 12:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Siggi Hall spáir í 1. umferð Bestu deildarinnar

Sigurður Bjartur var frábær með FH á síðasta tímabili.

Sigurður Bjartur var frábær með FH á síðasta tímabili.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það er komið að stóru stundinni, á morgun hefst Besta deild karla á nýjan leik.

Við fengum Sigurð Bjart Hallsson til að spá í leikina í 1. umferð en hann sló í gegn með FH í fyrra og var í kjölfarið seldur til AD Mérida á Spáni.
Víkingur 2 - 1 Breiðablik (19:15 á morgun)
Ég spái og jafnframt vona að við fáum opinn og skemmtilegan leik þar sem bæði lið munu blása til sóknar. Valdimar kemur Víkingum á bragðið í fyrri hálfleik, en Blikar munu jafna fyrir hlé með víti frá Höskuldi. Leikurinn mun stefna í jafntefli og vera í járnum þangað til Gylfi gerir gæfumuninn seint í leiknum með glæsilegu aukaspyrnu marki.

ÍBV 0 - 2 FH (13:00 á sunnudag)
FHingar munu stíga varlega til jarðar í Heimaey eftir mikinn öldugang. Bæði lið munu vera varkár í fyrsta leik. Ísak Óli skorar með skalla eftir hornspyrnu frá Kjartani Kára og Kjartan mun svo þræða Arnór Borg þar sem hann mun vippa yfir Zapytowski snyrtilega.

KA 1 - 0 Stjarnan (17:00 á sunnudag)
Daníel Djuric mun setja eina mark leiksins úr víti, hann mun fagna í andlit stuðningsmanna Stjörnunnar með ögrandi hætti sem mun vera sögulína leiksins. Skrítin orka yfir Stjörnu liðinu og það mun ekki breytast um helgina.

KR 5 - 0 Keflavík (17:00 á sunnudag)
Ég horfði á bæði lið spila í bikarnum um síðustu helgi, af þeim frammistöðum að dæma, þá munu Keflvíkingar því miður (samt ekki) vera niðurlægðir. Aron Sig heldur uppteknum hætti og skorar 2 og leggur upp önnur 2 á Eið Gauta, svo mun Aron Þórður setja rjómann á tertuna með þrumufleyg fyrir utan teig.

Valur 1 - 0 Þór (17:00 á sunnudag)
Þessi leikur mun bera mikinn vor brag og verður ekki mikið fyrir augað, Valsarar munu knýja fram sigur í gegnum mark frá Tryggva Hrafni.

Fram 0 - 1 ÍA (19:30 á sunnudag)
ÍA hefur sankað að sér reynslu miklum mönnum í vetur, þeir munu njóta góðs af þeirri reynslu og loka þessum leik. Gísli Eyjólfs mun skora eina mark leiksins og stimpla sig aftur inn í Bestu deildina eftir þriggja ára fjarveru.
Siggi spáir Víkingum sigri í opnunarleiknum.

Siggi spáir Víkingum sigri í opnunarleiknum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.