mið 09. júní 2021 19:45
Brynjar Ingi Erluson
Eigandi Inter Miami: Bjartsýnn á að Messi spili fyrir félagið
Lionel Messi gæti spilað fyrir Inter Miami
Lionel Messi gæti spilað fyrir Inter Miami
Mynd: Getty Images
Jorge Mas, eigandi bandaríska knattspyrnufélagsins Inter Miami, hefur rætt við Lionel Messi um að ganga til liðs við félagið í framtíðinni en hann ræðir þetta í viðtali við Miami Herald.

Messi keypti sér nýlega 7 milljón dollara íbúð í Miami og hefur þá átt í góðum samskiptum við David Beckham, sem er annar eiganda Inter.

Félagið hefur lengi haft auga á honum en Edinson Cavani og Luis Suarez hafa einnig verið orðaðir við félagið. Miami er vinsæll staður fyrir stjörnurnar og ekki er það verra að meirihluti íbúa borgarinnar eru reiprennandi í spænskunni.

„Ég og David höfum lagt mikla vinnu í að fá bestu leikmennina hingað og Lionel Messi er besti leikmaður allra tíma. Ég er mjög bjartsýnn að Messi spili fyrir Inter Miami því það myndi fullkomna arfleifð hjá besta knattspyrnumanni okkar kynslóðar og myndi haldast í hendur við þann metnað sem við sem eigendur Inter Miami gerum til að byggja heimsklassa lið," sagði Mas við Miami Herald.

Talið er afar líklegt að Messi skrifi undir nýjan samning við Barcelona en það er haldið því fram að samningurinn er til næstu tíu ára. Hann myndi spila næstu tvö tímabil með Barcelona og spila svo fyrir Inter Miami í tvö ár áður en hann myndi snúa aftur til Spánar og klára ferilinn og taka að sér stjórnunarstarf innan félagsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner