Fotbolti.net
09.07.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Allan McGregor snýr aftur til Rangers

Allan McGregor snýr aftur til Rangers
Canon

Mynd: EPA

Fyrrum markvörðurinn Allan McGregor er kominn aftur til Rangers og mun gegna starfi markmannsþjálfara.
McGregor lék rúma 500 leiki fyrir Rangers og 42 landsleiki fyrir Skotland. Hann vann 13 stóra titla með Rangers.

Hann var áður partur af þjálfarateymi Rangers í fyrra, þegar hann starfaði undir stjórn Barry Ferguson. Núna er hann hluti af teymi nýs aðalþjálfara, Derek McInnes.

„Ég er mjög spenntur að vera kominn aftur í þjálfarateymið hérna. Allir vita hvaða merkingu þessi klúbbur hefur fyrir mig og ég er mjög stoltur að fá þetta tækifæri að koma hingað aftur og hjálpa liðinu að gera góða hluti í nútið og framtíð. Þetta eru forréttindi," segir McGregor, sem lék einnig fyrir Hull City og Besiktas á ferlinum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.